Telja þingmenn vera að svíkja þjóðina

thingsalurinnAfgerandi meirihluti þeirra sem tóku þátt í skoðanakönnun Útvarps Sögu telja þingmenn vera að svíkja þjóðina með því að fella ekki úr gildi ákvörðun kjararáðs um launahækkun til þingmanna. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring. Niðurstaðan var kynnt í þættinum Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt: Eru þingmenn að svíkja þjóðina með því að fella ekki úr gildi ákvörðun kjararáðs um launahækkanir þingmanna?. Niðurstaðan var eftirfarandi:
Já 90,93%
Nei 7,34%
Hlutlaus 1,74%

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila