Telur ráðherra hafa haldið upplýsingum frá Alþingi um Landsvirkjun

Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Stefán Vagn Stefánsson, þingmann Framsóknarflokksins, í síðdegisútvarpinu á Útvarpi Sögu, um upplýsingagjöf Daða Más Kristóferssonar fjármálaráðherra, vegna starfsloka Harðar Arnarsonar, fyrrverandi forstjóra Landsvirkjunar. Stefán Vagn telur að ráðherrann hafi ekki sagt Alþingi alla söguna um aðdraganda starfslokanna, þótt hann hefði áður fengið upplýsingar um áhyggjur Harðar af pólitískum afskiptum af fyrirtækinu. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Ráðherra hafði fengið upplýsingar 11. september

Stefán Vagn sagði Hörð hafa sent fjármálaráðuneytinu greinargerð 19. júní 2026, þar sem hann lýsti áhyggjum af því að pólitísk afskipti væru farin að ógna rekstrarhæfni Landsvirkjunar. Samkvæmt fundargerð hefði ráðherrann verið upplýstur um greinargerðina 11. september 2026, sem hann hefði einnig viðurkennt í umræðum á Alþingi.

Þegar ráðherrann svaraði fyrirspurnum á Alþingi 19. október s.l.,hefði hann hins vegar lýst starfslokunum sem afleiðingu stjórnunarlegs ágreinings og sagt að þar með væri öll sagan sögð.

Stefán Vagn taldi þá skýringu ófullnægjandi þar sem ráðherrann hefði þegar haft vitneskju um að fyrrverandi forstjórinn teldi pólitísk afskipti eina af ástæðum starfslokanna.

Telur ráðherra hafa svarað gegn betri vitund

Arnþrúður spurði hvort ráðherrann hefði ekki kynnt sér málið nægilega vel eða hvort Stefán Vagn teldi hann hafa svarað Alþingi gegn betri vitund?

Stefán Vagn sagði ótrúverðugt að ráðherrann hefði ekki þekkt málið, bæði vegna upplýsinganna sem hann fékk 11. september og umfangsmikilla samskipta ráðuneytisins við stjórn Landsvirkjunar á þessu ári.

Hann gagnrýndi að greinargerð Harðar hefði ekki verið nefnd þegar ráðherrann svaraði þinginu 19. október s.l. Að hans mati hefði ráðherrann því haft undir höndum upplýsingar sem gengju lengra en sú skýring sem hann gaf þingmönnum.

Ráðherra hafnar pólitískum afskiptum

Stefán Vagn benti á að fjármálaráðherra, hefði í skýrslu sinni til Alþingis í gær, hafnað því að hafa haft pólitísk afskipti af Landsvirkjun. Jafnframt hefði hann lýst skilningi á áhyggjum fyrrverandi forstjórans og mögulegum viðbrögðum Eftirlitsstofnunar EFTA, ESA.

Arnþrúður spurði hvernig þetta færi saman við fullyrðingar ráðherrans um að engin óeðlileg afskipti hefðu átt sér stað?

Stefán Vagn taldi ósamræmi í skýringunum og sagði enn ósvarað hvers vegna forstjóri sem hefði gegnt starfinu í 17 ár teldi sér ekki lengur fært að starfa við þær aðstæður sem skapast hefðu.

Krefjast þess að upplýsingagjöfin verði rannsökuð

Stefán Vagn staðfesti að stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis hefði tekið málið upp að eigin frumkvæði í morgun. Eitt meginverkefni nefndarinnar yrði að kanna hvort fjármálaráðherra hefði veitt þinginu réttar og fullnægjandi upplýsingar.

Arnþrúður spurði hvaða afleiðingar það gæti haft ef nefndin kæmist að þeirri niðurstöðu að ráðherrann hefði farið rangt með upplýsingar. Stefán Vagn vildi ekki fullyrða um afleiðingarnar en taldi slíka niðurstöðu verða verulegt áfall fyrir ráðherrann og ríkisstjórnina.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila