Þátttaka Kristrúnar í kosningabaráttunni var ekki ferð til fjár

Pétur Gunnlaugsson ræddi við Stefán Pálsson, sagnfræðing og varaborgarfulltrúa, Vinstrisins í síðdegisútvarpinu í dag, um sveitarstjórnarkosningarnar og þá miklu hægrisveiflu sem birtist í niðurstöðunum. Stefán sagði þátttöku Kristrúnar Frostadóttur, forsætisráðherra í kosningabaráttunni ekki hafa skilað þeim árangri sem stefnt var að og taldi niðurstöðurnar fremur veikja ríkisstjórnina en styrkja hana. Hann sagði kosningarnar hafa þróast í skýra mælingu á stöðu ríkisstjórnarflokkanna meðal kjósenda. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Forsætisráðherra mjög sýnileg

Í viðtalinu sagði Stefán að hann myndi ekki eftir því að sitjandi forsætisráðherra hefði áður tekið jafn virkan þátt í sveitarstjórnarkosningum. Kristrún hefði ferðast víða um land, tengt sig náið við framboð Samfylkingarinnar og verið mjög sýnileg í kosningabaráttunni.

Kristrún ber pólitíska ábyrgð á niðurstöðunni

Að mati Stefáns hefði þessi nálgun ekki gengið upp. Hann sagði ljóst að ef Samfylkingin hefði unnið stórsigur hefðu stuðningsmenn flokksins eignað forsætisráðherra þann árangur. Af þeim sökum yrði einnig að líta svo á að hún bæri pólitíska ábyrgð þegar niðurstöðurnar urðu mun lakari en vænst var.

Stefán sagði að niðurstaðan í Reykjavík hefði verið sérstaklega þung fyrir Samfylkinguna. Þar hefði gamli meirihlutinn verið felldur, Píratar dottið út úr borgarstjórn og Flokkur fólksins einnig tapað miklu fylgi.

Hægri flokkar styrktu stöðu sína

Stefán sagði kosningarnar sýna mjög sterka hægrisveiflu um land allt, sérstaklega á höfuðborgarsvæðinu. Sjálfstæðisflokkurinn hefði unnið stórsigra víða og Miðflokkurinn einnig sótt í sig veðrið þar sem hann bauð fram. Hann sagði athyglisvert hversu hratt staða stjórnmálanna hefði breyst. Fyrir skömmu hefði mikið verið rætt um erfiða stöðu Sjálfstæðisflokksins og framtíð forystunnar, en nú hefði flokkurinn komið mjög sterkur út úr kosningunum.

Að hans mati tengdist þetta versnandi stöðu ríkisstjórnarinnar. Í aðdraganda kosninganna hefði óánægja með ríkisstjórnarflokkana aukist og kjósendur brugðist við því í sveitarstjórnarkosningunum. Stefán taldi að Flokkur fólksins hefði átt sérstaklega erfitt uppdráttar vegna stjórnarþátttökunnar.

Vinstrið sæmilega sátt við sína niðurstöðu

Stefán sagði niðurstöðu Vinstrisins ásættanlega miðað við aðstæður. Hann rifjaði upp að fyrir nokkrum mánuðum hefði tæplega 10% fylgi í Reykjavík þótt óraunhæft markmið. Hann benti jafnframt á að samanlagt fylgi Vinstrisins og Sósíalistaflokksins væri nú meira en samanlagt fylgi Vinstri grænna og Sósíalistaflokksins fyrir fjórum árum. Á sama tíma hefðu Píratar beðið afhroð og fallið út úr borgarstjórn.

Stefán taldi þróunina ekki einskorðast við Ísland heldur sæist svipuð óánægja með sitjandi stjórnvöld víða í Evrópu. Hann nefndi sveitarstjórnarkosningar í Bretlandi, Danmörku og Frakklandi þar sem stjórnarflokkar hefðu einnig tapað fylgi og hægri flokkar styrkt stöðu sína.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila