
Hjördís Vilhjálmsdóttir ræddi við Ara Edwald, borgarfulltrúa Miðflokksins í Reykjavík, og Mörtu Guðjónsdóttur, fyrrverandi borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, í þættinum Skipulagsmál á Útvarpi Sögu í dag, um áhrif þéttingarstefnu Reykjavíkur á húsnæðisverð og þróun borgarinnar. Ari sagði lóðar- og innviðakostnað geta farið yfir 400.000 krónur á fermetra áður en framkvæmdir hæfust. Marta gagnrýndi aðalskipulagið frá 2013 og sagði stefnuna hafa stuðlað að hækkandi húsnæðisverði og brottflutningi ungra fjölskyldna úr borginni. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Allt að 40 milljónir áður en framkvæmdir hefjast
Ari sagði kostnað vegna byggingarréttar, innviðagjalda og fjármagnskostnaðar hafa aukist verulega vegna þéttingarstefnunnar. Hann nefndi að kostnaðurinn gæti farið yfir 400.000 krónur á fermetra þegar tekið væri tillit til langs byggingartíma og vaxtagjalda.
Samkvæmt þeim tölum næmi kostnaðurinn um 24 milljónum króna fyrir 60 fermetra íbúð og 40 milljónum fyrir 100 fermetra íbúð, áður en fyrsta skóflustungan væri tekin.
Hann taldi vaxtarmörk byggðar, sem sett voru árið 2015, hafa takmarkað framboð á byggingarlandi og stuðlað að hækkun húsnæðisverðs.
Lóðaverð hefur allt að tífaldast
Marta rakti vandann til aðalskipulags Reykjavíkur frá 2013, þar sem áhersla hefði verið lögð á þéttingu byggðar miðsvæðis í stað þess að úthluta hagstæðum lóðum í nýjum hverfum.
Hún sagði lóðaverð áður hafa numið um 4% af heildarbyggingarkostnaði en síðan margfaldast, jafnvel allt að tífaldast. Þessi þróun hefði að hennar mati hækkað bæði íbúðaverð og leigu.
Marta rifjaði upp að hún hefði ásamt Júlíusi Vífli Ingvarssyni og Kjartani Magnússyni, greitt atkvæði gegn aðalskipulaginu og varað við afleiðingum þess.
Ungar fjölskyldur leita út fyrir borgina
Marta sagði hátt húsnæðisverð og skort á hentugum fjölskylduíbúðum hafa orðið til þess að ungt fólk leitaði í auknum mæli út fyrir Reykjavík.
Hún nefndi Hveragerði, Selfoss, Akranes og Suðurnesin sem dæmi um svæði þangað sem fólk hefði flutt vegna húsnæðiskostnaðar. Margir sæktu þó áfram vinnu til Reykjavíkur og þyrftu því að ferðast langar vegalengdir daglega.
Hjördís gagnrýndi að fjölskyldur þyrftu að aka fram hjá óbyggðum svæðum innan borgarmarkanna á leið til vinnu. Hún benti jafnframt á að í þéttingarhverfum skorti stundum bílastæði og aðstöðu fyrir barnafjölskyldur.
Endurskoðun aðalskipulags opnar fyrir breytta stefnu
Ari greindi frá því að borgarstjórn hefði samþykkt samhljóða að hefja endurskoðun aðalskipulags Reykjavíkur. Hann fagnaði þeirri ákvörðun og taldi mikilvægt að hlusta betur á óskir íbúanna um framtíðaruppbyggingu borgarinnar.
Hann gagnrýndi að fyrri borgarstjórnarmeirihluti hefði haldið áfram þéttingarstefnu þrátt fyrir andstöðu íbúa. Nýtt skipulag þyrfti að hans mati að gera ráð fyrir fjölbreyttari byggð og meira svigrúmi til uppbyggingar.
Marta sagði jafnframt nauðsynlegt að virða sérkenni eldri hverfa. Hún nefndi fyrirhugaðar háar byggingar við Ægisíðu og Skúlagötu sem dæmi um framkvæmdir sem gætu raskað því byggðamynstri sem fyrir væri.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
