Þjóðfrelsi vill að Alþingi rannsaki mögulega ráðherraábyrgð Þorgerðar Katrínar

Þjóðfrelsi beinir nú máli vegna embættisathafna Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra til stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis og fer fram á að kannað verði hvort tilefni sé til formlegrar rannsóknar á mögulegri ráðherraábyrgð hennar. Málið var upphaflega kært til ríkislögreglustjóra í júní 2025 en því var vísað frá á þeim grundvelli að mál vegna embættisbrota ráðherra heyri undir ákæruvald Alþingis og lögsögu Landsdóms.

Arnar Þór Jónsson lögmaður sendi upphaflegu kæruna fyrir hönd Þjóðfrelsis 13. júní 2025. Þar var farið fram á rannsókn á því hvort undirbúningur og framlagning frumvarps utanríkisráðherra um bókun 35 við EES-samninginn færi gegn stjórnskipan ríkisins og æðstu stjórnvöldum þess.

Kærunni var síðar fylgt eftir með frekari greinargerð þar sem fleiri embættisathafnir ráðherra voru teknar til umfjöllunar.

Þjóðfrelsi tekur sérstaklega fram í erindinu að ekki sé fullyrt að refsiverð háttsemi eða skilyrði ráðherraábyrgðar hafi þegar verið sönnuð. Krafa samtakanna er að atvikin verði rannsökuð formlega og óháð og síðan tekin afstaða til þess hvort skilyrði ábyrgðar séu fyrir hendi.

Vill að Alþingi taki málið til rannsóknar

Ríkislögreglustjóri vísaði málinu frá 31. mars síðastliðinn, rúmum 9 mánuðum eftir að kæran barst. Samkvæmt erindinu hafði þá einnig verið kvartað til umboðsmanns Alþingis vegna tafa á afgreiðslu málsins.

Í ákvörðun ríkislögreglustjóra var vísað til þess að málið ætti undir ákæruvald Alþingis og lögsögu Landsdóms.

Þjóðfrelsi ákvað í kjölfarið að beina málinu til stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar en beið þar til þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna Íslands við Evrópusambandið var lokið. Tilgangurinn var samkvæmt erindinu að koma í veg fyrir að málið blandaðist inn í umræðuna fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna.

Nú er þess farið á leit að nefndin meti hvort leggja eigi til við Alþingi að sérstök rannsóknarnefnd verði skipuð. Komist rannsókn að þeirri niðurstöðu að skilyrði ráðherraábyrgðar kunni að vera uppfyllt er Alþingi jafnframt hvatt til að taka afstöðu til þess hvort höfða skuli mál fyrir Landsdómi.

Bókun 35 eitt helsta álitaefnið

Eitt meginatriði erindisins snýr að frumvarpi um bókun 35 við EES-samninginn sem utanríkisráðherra hefur lagt fram að nýju.

Samkvæmt frumvarpinu skal skýrt og óskilyrt lagaákvæði sem réttilega innleiðir skuldbindingu samkvæmt EES-samningnum ganga framar öðru almennu lagaákvæði ef ákvæðin eru ósamrýmanleg, nema Alþingi hafi sérstaklega mælt fyrir um annað.

Þjóðfrelsi telur að rannsaka þurfi hvort slík forgangsregla breyti stöðu Alþingis og íslenskra dómstóla með þeim hætti að ekki sé hægt að lögfesta hana án þess að stjórnarskránni sé fyrst breytt.

Í erindinu er meðal annars bent á að yngri lög Alþingis gætu samkvæmt reglunni þurft að víkja fyrir eldri reglum sem innleiða EES-skuldbindingar. Jafnframt er því haldið fram að breytingin geti aukið vægi túlkunar EFTA-dómstólsins við úrlausn íslenskra dómstóla.

Samstarf við ESB í utanríkis- og öryggismálum einnig til skoðunar

Annað atriði snýr að sameiginlegri yfirlýsingu sem utanríkisráðherrar EFTA/EES-ríkjanna og utanríkismálastjóri ESB undirrituðu 21. maí 2025 um aukið samstarf á sviði utanríkis- og öryggismála.

Þjóðfrelsi vill að rannsakað verði hvort yfirlýsingin hafi falið í sér almenna pólitíska skuldbindingu Íslands til að fylgja ákvörðunum, yfirlýsingum og refsiaðgerðum ESB og hvort slík skuldbinding hafi kallað á samþykki Alþingis.

Einnig er óskað rannsóknar á því hvort utanríkismálanefnd Alþingis hafi verið höfð með í ráðum áður en yfirlýsingin var undirrituð.

Upplýsingar um fyrirhugaða verndartolla ESB

Þriðji þátturinn varðar upplýsingar sem utanríkisráðherra fékk frá viðskiptastjóra ESB 10. júlí 2025 um fyrirhugaða verndartolla á kísilmálma og járnblendi sem gætu haft áhrif á íslenskan útflutning.

Samkvæmt erindinu var ráðherra beðin um að gæta trúnaðar um áformin. Hún kom fyrir utanríkismálanefnd 21. júlí en Þjóðfrelsi telur að nefndin hafi þá ekki fengið fullnægjandi upplýsingar um málið.

Ráðherra hefur skýrt málið þannig að hún hafi nefnt það á fundinum en ekki getað farið nánar út í það vegna þess að stjórnarandstaðan hafi óskað eftir að fundurinn yrði ekki trúnaðarfundur. Nefndarmenn stjórnarandstöðunnar hafa hins vegar andmælt því að málið hafi verið rætt.

Þjóðfrelsi vill að rannsakað verði hvenær ráðherra fékk upplýsingarnar, hver óskaði eftir trúnaði, hvenær utanríkismálanefnd var upplýst og hvort töfin hafi skert möguleika nefndarinnar til eftirlits og hagsmunagæslu.

Vill að möguleg ráðherraábyrgð verði könnuð

Í erindinu er Alþingi sérstaklega hvatt til að rannsaka hvort háttsemi utanríkisráðherra geti varðað ákvæði laga um ráðherraábyrgð.

Meðal þess sem óskað er eftir að verði rannsakað er hvort ráðherra hafi ekki leitað samþykkis Alþingis þegar þess hafi verið krafist, hvort framkvæmd hafi farið gegn stjórnarskrá, hvort athafnir geti hafa skert frelsi eða sjálfsforræði landsins og hvort Alþingi og utanríkismálanefnd hafi ekki fengið upplýsingar sem höfðu verulega þýðingu.

Þjóðfrelsi leggur áherslu á að með erindinu sé ekki komist að niðurstöðu um sekt eða ráðherraábyrgð. Samtökin telja hins vegar að þau atriði sem rakin eru í erindinu gefi nægilegt tilefni til rannsóknar.

Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd er því beðin um að taka afstöðu til þess hvort skipa eigi rannsóknarnefnd. Ef niðurstöður slíkrar rannsóknar gefa tilefni til þess yrði það síðan Alþingis að ákveða hvort málið færi áfram fyrir Landsdóm.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila