
Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Jóhann Grétarsson, prest og forstöðumann Boðunarkirkjunnar, Magneu Sturludóttur, prest Boðunarkirkjunnar, og Elínu Ósk Óskarsdóttur óperusöngkonu í síðdegisútvarpinu á Útvarpi Sögu í dag, um hrekkjavökuna og þátttöku kristinna kirkna í hátíðinni. Gestirnir gagnrýndu að innan þjóðkirkjunnar væru haldnar hrekkjavökuskemmtanir fyrir börn þar sem meðal annars væri boðið upp á draugahús, draugasögur og spákonur. Slík starfsemi samræmdist ekki kristnum boðskap og ætti ekki heima í safnaðarstarfi kirkjunnar. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Draugahús og spákonur fyrir 6 ára börn
Magneu brá þegar hún sá að innan þjóðkirkjunnar væri auglýst hrekkjavökuskemmtun fyrir börn frá 6 ára aldri. Þar væri boðið upp á draugahús, draugasögur og spákonu og seldur aðgangur að skemmtuninni. Hún gagnrýndi að kirkjan skyldi standa fyrir slíkri starfsemi þegar hlutverk hennar væri að boða kristna trú og kenningar Jesú Krists.
Hrekkjavakan hefði orðið sífellt meira áberandi hér á landi og búningar barnanna væru orðnir óhugnanlegri með hverju árinu. Magnea sagði óeðlilegt að kirkjan tæki þátt í að gera skemmtun úr ótta, dauða og göldrum.
Hún vísaði til ákvæða Biblíunnar þar sem varað væri við spádómum, töfrum og samskiptum við hina látnu. Þar nefndi hún meðal annars Fimmtu Mósebók, Þriðju Mósebók og Efesusbréfið.
Kristinni trú blandað saman við heiðna siði
Jóhann gagnrýndi að kristnar kirkjur tækju upp siði sem ættu rætur í heiðnum trúarbrögðum. Hann sagði þjóðkirkjuna eiga að standa fyrir ákveðinn boðskap en ekki laga starfsemi sína að öllum þeim hátíðum sem nytu vinsælda í samfélaginu.
Hann rifjaði upp hvernig kaþólska kirkjan hefði á sínum tíma tekið ýmsa eldri siði og hátíðir og gefið þeim kristna merkingu. Venjur sem tengdust draugum, uppvakningum og ótta hefðu þó haldist.
Dauðinn er svefn fram að endukomu Jesú Krists
Samkvæmt þeirri biblíutúlkun sem hann fylgir eiga hinir látnu ekki að geta snúið aftur og haft samskipti við lifandi fólk. Dauðinn sé svefn fram að endurkomu Jesú Krists þegar hinir látnu verði reistir upp.
Jóhann gagnrýndi því að draugar og afturgöngur væru notuð til skemmtunar í kirkjustarfi og börnum væri með því miðlað hugmyndum sem samræmdust ekki kenningum Biblíunnar.
Kirkjan reyni að laða börn að með skemmtunum
Elín Ósk benti á að þjóðkirkjan kynni að nota hrekkjavökuskemmtanir til að fá fleiri börn og fjölskyldur til að mæta í kirkju. Erfitt gæti verið að ná til þeirra með hefðbundnu safnaðarstarfi og því væru ýmsar leiðir reyndar til að vekja áhuga þeirra.
Magnea gagnrýndi að kirkjan lagaði sig að vinsælum siðum samfélagsins í stað þess að halda fast við eigin boðskap. Hún vísaði til orða Jesú í Matteusarguðspjalli um að gera allar þjóðir að lærisveinum og kenna þeim að halda það sem hann hefði boðað.
Að hennar sögn væri það hlutverk kirkjunnar en ekki að taka upp hátíðir sem byggðust á ótta og yfirnáttúrulegum fyrirbærum.
Siðbótardagurinn 31. okt. fellur í skuggann
Jóhann vakti einnig athygli á því að hrekkjavakan væri haldin 31. október, sama dag og siðbótardagur mótmælendakirkna.
Þann dag árið 1517 er Marteinn Lúther sagður hafa fest 95 greinar sínar á kirkjudyrnar í Wittenberg og þar með hafið þá þróun sem leiddi til siðbótarinnar.
Jóhann sagði mótmælendakirkjur víða erlendis hafa haldið daginn hátíðlegan en minning siðbótarinnar hefði nú fallið í skuggann af hrekkjavökunni. Hann vildi að kirkjan legði meiri rækt við eigin sögu og þann boðskap sem siðbótin hefði fært fólki, meðal annars frelsi frá ótta við refsingu eftir dauðann.
Að hans mati væri eðlilegra að lúthersk kirkja héldi upp á þann arf en að bjóða börnum til hrekkjavökuskemmtana með draugum og spákonum.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
