
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra ætlar ekki að slíta aðildarferli Íslands við Evrópusambandið þrátt fyrir að meirihluti þjóðarinnar hafi hafnað því að aðildarviðræður yrðu teknar upp að nýju. Í bréfi sem hún sendi Helen McEntee utanríkisráðherra Írlands, sem fer með formennsku í ráðherraráði Evrópusambandsins í gær segir hún ríkisstjórnina virða niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar en tekur jafnframt sérstaklega fram að staða aðildarferlis Íslands haldist óbreytt.
Þorgerður Katrín segir að ríkisstjórnin muni vegna niðurstöðunnar ekki sækjast eftir því að aðildarviðræður verði teknar upp að nýju. Hún lýsir atkvæðagreiðslunni sem kosningu um frekari skref í Evrópusamrunanum með endurupptöku aðildarviðræðna en niðurstaðan hafi verið að halda samstarfinu áfram á þeim grunni sem þegar sé fyrir hendi.
Staða aðildarferlisins óbreytt
Sérstaka athygli vekur að Þorgerður Katrín tekur fram í bréfinu að þótt ríkisstjórnin muni ekki sækjast eftir endurupptöku viðræðna verði staða aðildarferlisins óbreytt.
Þar með er ekki boðað í bréfinu að ríkisstjórnin hyggist slíta aðildarferlinu í kjölfar niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar. Þvert á móti er beinlínis tekið fram að staða þess haldist óbreytt.
Boðar nánara samstarf við ESB
Utanríkisráðherra leggur jafnframt áherslu á áframhaldandi nánara samstarf Íslands og Evrópusambandsins. Hún segir ESB einn nánasta samstarfsaðila Íslands og að ríkin deili hagsmunum, gildum og áherslum.
Sérstaklega eru nefnd utanríkismál, öryggis- og varnarmál og segir Þorgerður Katrín að byggt verði áfram á öryggis- og varnarsamstarfi Íslands og ESB. EES-samningurinn verði áfram hryggjarstykkið í samstarfinu ásamt Schengen-samstarfinu.
Ríkisstjórnin vill einnig efla samstarf við ESB um sjávarútveg og málefni hafsins og norðurslóða. Samkeppnishæfni, innri markaðurinn og loftslagsmál eru einnig nefnd sem samstarfssvið.
Áfram full samstaða með ESB gagnvart Rússlandi
Þorgerður Katrín áréttar einnig stuðning Íslands við Úkraínu. Hún segir Ísland áfram ætla að veita Úkraínu stuðning á sviði varnarmála, efnahagsmála og mannúðarmála vegna stríðsins við Rússland.
Í bréfinu kemur jafnframt fram að Ísland fylgi refsiaðgerðum ESB gegn Rússlandi að fullu og leggi mikla áherslu á aðgerðir gegn svokölluðum skuggaflota Rússlands.
Vill rækta og dýpka samstarfið
Í niðurlagi bréfsins segir Þorgerður Katrín samstarf Íslands og Evrópusambandsins ná yfir fjölmörg svið og að ríkisstjórnin sé staðráðin í að halda áfram að rækta og dýpka þau tengsl.
Hún segir að erfiðir tímar kalli á nána samstöðu innan „evrópsku fjölskyldunnar“ og að Ísland muni áfram leggja sitt af mörkum til sameiginlegra hagsmuna og grunngilda.
Niðurstaða þjóðaratkvæðagreiðslunnar leiðir því til þess að ríkisstjórnin sækist ekki eftir endurupptöku aðildarviðræðna. Bréf Þorgerðar Katrínar sýnir hins vegar jafnframt að hún hyggst halda stöðu aðildarferlisins óbreyttri og vinna áfram að dýpri tengslum Íslands við Evrópusambandið.
Bréf Þorgerðar má sjá hér að neðan
