Þorgerður Katrín fundaði með Selenskí á Keflavíkurflugvelli

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra fundaði með Volodómír Selenskí Úkraínuforseta á Keflavíkurflugvelli síðdegis í dag. Á fundinum ræddu þau stöðu mála í Úkraínu og áframhaldandi stuðning Íslands við landið. Þorgerður Katrín segir að hún hafi ítrekað staðfastan stuðning Íslands við varnarbaráttu Úkraínu gegn Rússlandi. Íslensk stjórnvöld muni áfram veita Úkraínu stuðning á sviði varnarmála, efnahagsmála og mannúðarmála.

Loftvarnir og orkumál í forgangi

Áhersla verður sérstaklega lögð á loftvarnir og orkumál en Þorgerður Katrín segir stjórnvöld hlusta á óskir Úkraínumanna um hvers konar aðstoð þeir þurfi.

„Við hlustum á óskir Úkraínu um stuðning og íslensk stjórnvöld munu halda ótrauð áfram að veita þeim nauðsynlegan varnar-, efnahags- og mannúðarstuðning, einkum sem lýtur að loftvörnum og á sviði orkumála enda horfir úkraínska þjóðin því miður fram á harðan vetur,“ segir Þorgerður Katrín.

Ísland hefur þegar veitt fé í sérstakan orkusjóð fyrir Úkraínu. Íslensk orkufyrirtæki hafa einnig gefið varahluti og annan búnað sem nýtist við viðhald og viðgerðir á orkuinnviðum landsins.

Yfirmaður úkraínsku leyniþjónustunnar á fundinum

Selenskí var ekki einn á fundinum. Með honum voru Denys Shmyhal orkumálaráðherra Úkraínu og Rustem Umerov, yfirmaður úkraínsku leyniþjónustunnar.

Umerov vinnur meðal annars að auknu samstarfi Evrópuríkja um loftvarnir.

Fundurinn fór fram á Keflavíkurflugvelli en í tilkynningu utanríkisráðuneytisins kemur ekki fram hvert erindi Selenskí til Íslands var að öðru leyti eða hversu lengi hann dvaldi hér á landi.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila