
Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Ólaf Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseta Íslands og einn stofnenda Áfram Ísland, í síðdegisútvarpinu um afstöðu Evrópusambandsins til framhalds aðildarviðræðna við Ísland. Ólafur Ragnar vísaði til umfjöllunar Politico þar sem Þorgerður Katrín utanríkisráðherra, hefði verið spurð hvort hún væri sammála um að Ísland fjármagnaði inngöngu Svartfjallalands í ESB þá hefði ráðherrann sagt ” absolutely”. Ólafur Ragnar sagði athyglina í Brussel meðal annars beinast að því að tengja Ísland og Svartfjallaland saman í stækkunarferli sambandsins. Ísland væri ríkt ríki en Svartfjallaland mun fátækara og fjárframlög Íslands gætu þannig hjálpað til við að mæta kostnaði vegna inngöngu Svartfjallalands. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Ísland og Svartfjallaland sett saman í stækkunarferlinu
Áhugi embættismanna Evrópusambandsins á Íslandi snerist ekki aðeins um hefðbundin samningsmál heldur einnig fjárhagslega hlið frekari stækkunar, samkvæmt þeirri mynd sem Ólafur Ragnar dró upp af umfjöllun Politico.
Svartfjallaland hefði lengi verið í aðildarferli í 14 ár og væri mun fátækara en Ísland. Innkoma þess myndi því hafa önnur áhrif á sameiginlega sjóði sambandsins en innganga Íslands sem væri auðugt ríki og líklegt til að greiða meira til ESB en það fengi til baka.
Fjárframlög Íslands gætu vegið upp kostnaðinn
Ólafur Ragnar túlkaði umfjöllunina þannig að innan ESB væri horft til þess að fjárframlög Íslands gætu vegið að einhverju leyti upp kostnað vegna inngöngu Svartfjallalands. Þarna birtust hagsmunir Evrópusambandsins af því að fá ríkt ríki inn, samhliða fátækara umsóknarríki.
Hann lagði áherslu á að Íslendingar þyrftu að hafa þessa hagsmuni ESB í huga þegar rætt væri um áhuga sambandsins á að endurvekja aðildarferli Íslands.
Þorgerður Katrín svaraði „Absolutely“
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra hefði verið spurð hvort hún væri tilbúin að ræða tengingu Íslands og Svartfjallalands í stækkunarferlinu. Ólafur Ragnar vísaði til þess að svar hennar hefði verið „Absolutely“ og gagnrýndi að hún hefði ekki fyrst gert fyrirvara um íslenska hagsmuni og skilmála slíkrar tengingar.
Arnþrúður tók undir að þetta veki upp spurningar um fjárhagslegar skuldbindingar Íslands. Ólafur Ragnar taldi mikilvægt að þær væru skýrar áður en ákvörðun yrði tekin um framhald aðildarferlisins.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
