Meirihluti þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun Útvarps Sögu telja að Þórhildur Sunna Ævarsdóttir þingmaður Pírata eigi ekki að segja af sér þingmennsku vegna brota hennar gegn siðareglum Alþingis.
Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring.
Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt: Á Þórhildur Sunna Ævarsdóttir þingmaður Pírata að segja af sér þingmennsku vegna brota hennar á siðareglum Alþingis? Niðurstaðan var eftirfarandi:
Nei 62,2%
Já 37,1%
Hlutlaus 0,1%
Atkvæði 912