Þorvaldur: Efast um að kvikugöng séu undir Grindavík

Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Þorvald Þórðarson prófessor í eldfjallafræði við Háskóla Íslands um forsendur hættumats vegna eldfjallavirkni á Reykjanesskaga. Þorvaldur segir að forsendurnar byggi um of á einni túlkun á kvikuhreyfingum og gosrásum. Að hans mati þurfi að rýna betur í gögnin út frá fleiri sjónarhornum og taka tillit til þess að kvikuflæði getur hagað sér með ólíkum hætti eftir aðstæðum. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Efast um að kvikugöng séu undir Grindavík

Í viðtalinu kom fram að núverandi hættumat virðist byggja á þeirri forsendu að kvika teygji sig í löngum göngum undir byggð, meðal annars undir Grindavík. Þorvaldur dregur í efa að slík kvikugöng séu raunverulega til staðar í þeim mæli sem sum líkan gera ráð fyrir. Hann bendir á að kvika leiti sér yfirleitt leið upp á jaðri kvikuhólfa þar sem skorpan er veik, frekar en beint upp undir miðju byggðar.Hann vill vara við of þröngri túlkun á kvikuflæði og gosrásum.

Kvika hegðar sér ekki alltaf á sama hátt

Þorvaldur segir að mismunandi nálganir séu til innan jarðvísinda við túlkun á skjálftavirkni og kvikuhreyfingum. Í sumum tilvikum sé talið að skjálftar gefi til kynna að kvika sé að þrýsta sér upp í gegnum bergið en í öðrum tilfellum geti skjálftarnir endurspeglað spennulosun sem síðan býr til rými fyrir kviku. Að hans mati sé of þröngt litið á þessi gögn í opinberri umræðu og hættumat byggt á of einhliða greiningu.

Þörf á opnari umræðu innan vísindasamfélagsins

Í viðtalinu kom fram að líta þyrfti á kvikufræði og þróun gosrása í víðara samhengi og draga fleiri sérfræðinga að borðinu. Þorvaldur segir að þegar aðeins ein nálgun fái að móta hættumat, án óháðrar rýni eða skoðunar á öðrum möguleikum, skapist hætta á að forsendur ákvarðana verði ófullnægjandi. Slíkt geti haft bein áhrif á ákvarðanir um lokanir og aðrar samfélagslegar varnir.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila