
Tveir aðrir menn voru úrskurðaðir í gæsluvarðhald á mánudag á grundvelli rannsóknarhagsmuna að kröfu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Annar þeirra er íslenskur ríkisborgari en hinn erlendur. Annar var úrskurðaður í gæsluvarðhald til 21. ágúst og hinn til 17. ágúst.
Sá látni erlendur ríkisborgari
Málið hófst þegar tilkynnt var um alvarlega líkamsárás í heimahúsi við Vallargerði á Kársnesi um miðjan dag á sunnudag. Karlmaður sem varð fyrir árásinni var fluttur á Landspítalann þar sem hann lést síðdegis sama dag. Hinn látni var erlendur ríkisborgari á fimmtugsaldri.
Þrír sæta nú gæsluvarðhaldi
Nokkrir voru handteknir vegna málsins og lögregla hefur unnið að rannsókn þess síðan. Þrír menn sæta nú gæsluvarðhaldi vegna rannsóknarinnar.
Lögregla hefur ekki veitt frekari upplýsingar um aðdraganda árásarinnar eða þátt hvers og eins mannanna í málinu.
