Þrír í gæsluvarðhaldi eftir aðgerðir vegna stórs fíkniefnamáls

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og Tollgæslan stóðu fyrir viðamiklum aðgerðum í gær í tengslum við rannsókn á umfangsmiklu fíkniefnamáli. Þrír menn hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald, tveir í gærkvöld og einn í dag. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglu.

6 handteknir í aðgerðunum

Sex menn voru handteknir í aðgerðunum en þremur þeirra var sleppt skömmu síðar úr haldi lögreglu. Málið varðar innflutning á verulegu magni af sterkum fíkniefnum.

Þá segir í tilkynningu lögreglu að ekki verði veittar frekari upplýsingar um rannsókn málsins að svo stöddu.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila