Þrjú í áframhaldandi gæsluvarðhaldi vegna skipulagðrar brotastarfsemi

Tveir karlar og ein kona voru í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur úrskurðuð í áframhaldandi tveggja vikna gæsluvarðhald, eða til 9. apríl, á grundvelli rannsóknarhagsmuna að kröfu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Í tilkynningunni segir að fólkið sem var handtekið í byrjun mánaðarins í kjölfar umfangsmikilla aðgerða, sé grunað um skipulagða brotastarfsemi, sem talin er varða mansal, skjalafals, peningaþvætti, brot á lögum um útlendinga og lögum um atvinnuréttindi útlendinga.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila