Þróa leiðbeiningar fyrir innra eftirlit sveitarfélaga vegna þjónustu búsetuúrræða

Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála (GEV) hefur undanfarin misseri unnið að frumkvæðisathugunum á tveimur búsetuúrræðum fyrir fatlað fólk, annars vegar á Kleppsvegi 90 í Reykjavík og hins vegar á Sæbraut 2 á Seltjarnarnesi. Niðurstöður þeirra eru að miklu leyti í samræmi við fyrri athuganir forvera GEV, Gæða- og eftirlitsstofnunar félagsþjónustu og barnaverndar, á öðrum búsetuúrræðum.

Í tilkynningu segir að ljóst sé að tilefni er til að kanna framkvæmd sveitarfélaga á ýmsum lagalegum skyldum í þjónustu við fatlað fólk sem býr í sértækum búsetuúrræðum, meðal annars varðandi innra eftirlit, atvikaskráningar, tilkynningar um alvarleg óvænt atvik, einstaklingsbundnar þjónustuáætlanir, persónulega talsmenn og ráðstafanir til að draga úr beitingu nauðungar í þjónustu. Af þeirri ástæðu mun GEV stofna til frumkvæðisathugunar á þjónustu við fatlað fólk í sértækum búsetuúrræðum.

Ákveðið hefur verið að nýta þessa frumkvæðisathugun GEV til að efla um leið innra eftirlit sveitarfélaganna. Ákall hefur verið eftir leiðbeiningum frá GEV til sveitarfélaganna um framkvæmd innra eftirlits. Vinnur GEV því nú að þróun gátlista og leiðbeininga í samráði við fulltrúa Geðhjálpar, Þroskahjálpar og tveggja sveitarfélaga. Þegar leiðbeinandi efnið er fullunnið mun GEV senda það til sveitarfélaga landsins sem munu sjálf taka út þjónustu búsetuúrræða sinna undir handleiðslu stofnunarinnar. Sveitarfélögin verður svo gert að senda niðurstöður sínar til GEV ásamt tímasettri úrbótaáætlun um þau atriði sem þörf er á að bæta.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila