
Pétur Gunnlaugsson ræddi við Guðbjörn Guðbjörnsson, stjórnsýslufræðing og óperusöngvara í síðdegisútvarpinu i dag, um vaxandi ólgu í Evrópu og ástandið í Frakklandi. Guðbjörn sagði þróunina hafa orðið mjög hraða og vísaði til mats David Betz, prófessors við King’s College sem hefur fjallað um samfélagsátök í nokkrum Evrópuríkjum geti þróast í átt til borgarastyrjaldar. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Átökin geta þróast í nokkrum áföngum
Pétur vakti máls á ólgunni í Frakklandi og fleiri Evrópuríkjum og spurði hvort stjórnvöld hefðu vanmetið hversu alvarleg staðan væri orðin.
Guðbjörn vísaði til David Betz sem hefur um árabil fjallað um þróun samfélagsátaka í Evrópu. Hann tók sérstaklega fram að Betz væri ekki að boða borgarastyrjöld heldur greina hvernig ófriður og átök gætu þróast.
Betz hefði notað hugtakið „insurgency“ yfir þróunina og lýst því hvernig átök gætu færst í gegnum ákveðin stig. Að undanförnu hefði hann orðið mun ákveðnari í mati sínu og væri farinn að horfa til þess að þróunin gæti stefnt í átt til borgarastyrjaldar.
Þróunin orðin mun hraðari
Pétur spurði hvort nýjustu atburðir styddu þá greiningu. Guðbjörn svaraði því játandi og sagði þróunina svakalega hraða. Betz hefði ekki talað með sama hætti fyrir 3 til 6 mánuðum og virtist sjálfur undrandi yfir hraðanum.
Hann sagði ástæðu til að taka slíkt mat alvarlega þegar það kæmi frá manni sem hefði fylgst með þróuninni árum saman. Frakkland, Þýskaland, Bretland, Belgía og Holland væru meðal þeirra ríkja sem Betz hefði sérstaklega nefnt í þessu samhengi.
Ofbeldi getur kallað á önnur og harðari viðbrögð
Pétur færði umræðuna sérstaklega að Frakklandi og spurði hvað Emmanuel Macron gæti gert ef átökin héldu áfram að magnast og vopnum yrði beitt í auknum mæli.
Guðbjörn rifjaði upp atburðina í Frakklandi árið 1968 þegar Charles de Gaulle, fór til Baden-Baden í Þýskalandi og tryggði sér stuðning franska hersins áður en hann sneri aftur, leysti upp þingið og boðaði til kosninga.
Hann sagði lögreglu geta tekist á við óeirðir upp að ákveðnu marki en ef ástandið færi algjörlega úr böndunum þyrfti stjórnvöld að geta kallað herinn til aðstoðar.
Óvissa um stuðning hersins
Guðbjörn sagði Macron ekki vera mjög sterkan leiðtoga að sínu mati og taldi óvíst hvort hann hefði sama bakland innan hersins og de Gaulle hafði á sínum tíma.
Hann vísaði jafnframt til þess að Macron væri sagður hafa sent um 500 hermenn vegna ástandsins og herlið hefði einnig verið kallað út á Ítalíu.
Vaxandi ofbeldi og hraði þróunarinnar væru því meginástæðurnar fyrir því að hann teldi rétt að taka viðvaranir um enn alvarlegri átök í Evrópu alvarlega.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
