
Þúsundir erlendra ferðamanna sem og Íslendinga komu saman víða á vestanverðu Íslandi í dag til að fylgjast með almyrkva á sólu. Um var að ræða fyrsta almyrkvann sem sást frá Íslandi í 72 ár og hafði fjöldi erlendra gesta skipulagt ferð sína til landsins til þess að verða vitni að almyrkvanum.
Talið var að um 75 þúsund erlendir ferðamenn væru staddir á Íslandi þegar almyrkvinn gekk yfir. Ekki voru þeir allir komnir sérstaklega vegna hans en mikill fjöldi ferðamanna safnaðist saman á þeim svæðum þar sem almyrkvinn var sýnilegur. Reuters greindi frá því fyrir myrkvann að íslensk yfirvöld hefðu gert ráð fyrir allt að 80 þúsund erlendum gestum í landinu.
1.200 ferðamenn fluttir á Snæfellsnes
Eitt skýrasta dæmið um áhuga erlendra ferðamanna var á Snæfellsnesi. Ferðaþjónustufyrirtækið Icelandia flutti þar yfir 1.200 erlenda ferðamenn í 24 rútum á Rif til þess að fylgjast með myrkvanum. Margir þeirra höfðu bókað ferðina meira en ári fyrirfram og sumir höfðu skipulagt Íslandsferðina sérstaklega í kringum sólmyrkvann. Þá komu fjölmargir aðrir ferðamenn ýmist með öðrum ferðaþjónustufyrirtækjum eða bílaleigubílum.
Sérstakt áhorfssvæði var útbúið á Rifi og gestir fengu sólmyrkvagleraugu. Veitingar og salernisaðstaða voru einnig sett upp vegna mannfjöldans. Guðmundur Franklín Jónsson var staddur á Snæfellsnesi á meðan myrkvanum stóð og tók myndband af sjónarspilinu en myndbandið má sjá neðst í fréttinni.
Áhuginn á almyrkvanum hafði raunar verið sjáanlegur í ferðaþjónustunni löngu áður. Gistiverð í Reykjavík hafði hækkað verulega og samkvæmt gögnum Lighthouse Intelligence var meðalverð hótelherbergja í borginni komið yfir 1.000 Bandaríkjadali aðfaranótt sólmyrkvadagsins. Margir erlendir gestir höfðu bókað gistingu árum fyrir viðburðinn.
Mannfjöldinn margfaldaðist á Vestfjörðum
Mikil aðsókn var einnig á Vestfjörðum þar sem almyrkvinn varði lengst. Lögregla greindi frá því að mannfjöldinn á svæðinu hefði margfaldast þegar ferðamenn streymdu vestur. Um 1.500 ökutæki höfðu farið um teljara á Klettshálsi á einum sólarhring og þegar leið á daginn nálgaðist fjöldi bíla á leiðinni að Látrabjargi 1.000.
Lögregla taldi ökutæki en ekki einstaklinga. Ef miðað væri við þrjá í hverjum bíl jafngilti það um 3.000 manns á leiðinni að Látrabjargi einum saman. Rauðisandur og Bjargtangar fylltust og þurfti að stýra umferð um svæðið.
Látrabjarg var sérstaklega eftirsóttur áfangastaður enda var almyrkvinn þar lengstur á landi, eða í um 2 mínútur og 13 sekúndur.
Margmenni á höfuðborgarsvæðinu
Fjölmenni safnaðist einnig saman á höfuðborgarsvæðinu. Margir komu meðal annars saman við Ægisíðu og á Seltjarnarnesi til að fylgjast með þegar tunglið gekk fyrir sólina.
Almyrkvinn gekk yfir vestanvert Ísland á sjötta tímanum og var sýnilegur á Vestfjörðum, Snæfellsnesi, Vesturlandi, höfuðborgarsvæðinu og Reykjanesskaga. Annars staðar á landinu sást deildarmyrkvi.
