Tilnefningum til biskupskjörs lokið

Tilnefningum til embættis biskup lauk á hádegi í dag. Þeir þrír aðilar sem flestar tilnefningar fengu um kosningu til biskupskjörs biskups Íslands og vígslubiskupa voru þau séra Guðrún Karls Helgudóttir, séra Guðmundur Karl Brynjarsson og séra Elínborg Sturludóttir.

Atkvæði skiptust svo:

Sr. Guðrún Karls Helgudóttir (65)

Sr. Guðmundur Karl Brynjarsson (60)

Sr. Elínborg Sturludóttir (52)

Næstir komu, með 10 tilnefningar eða fleiri:

Sr. Ninna Sif Svavarsdóttir (47)

Sr. Helga Soffía Konráðsdóttir (41)

Sr. Bjarni Karlsson (38)

Sr. Kristján Björnsson (20)

Sr. Sveinn Valgeirsson (13)

Á tilnefningarskrá voru 167, af þeim tilnefndu 160 eða 95.81%.

Alls voru 48 tilnefndir.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila