Tölueinkunnir taka við af bókstöfum í grunnskólum

Mennta- og barnamálaráðuneytið hefur ákveðið að breyta námsmati í grunnskólum þannig að einkunnir verði gefnar í tölum í stað bókstafa. Breytingarnar verða innleiddar í 2 áföngum og verða nemendur í 10. bekk fyrstir til að fá lokaeinkunnir á nýjum 1–10 kvarða vorið 2027.

Samkvæmt gildandi aðalnámskrá byggir námsmat í grunnskólum á bókstafakvarða sem tengdur er hæfni- og matsviðmiðum við lok 4., 7. og 10. bekkjar. Markmið breytinganna er að gera einkunnagjöf skýrari, samræmdari og auðskiljanlegri fyrir nemendur, foreldra og skólasamfélagið.

Tölur frá 1 upp í 10

Undirbúningur vegna fyrsta áfanga hefst haustið 2026. Frá vorinu 2027 verða lokaeinkunnir nemenda í 10. bekk gefnar í heilum tölum frá 1–10.

Samhliða verður unnið að því að skýra vægi einstakra þátta innan námsgreina. Í drögum ráðuneytisins fyrir íslensku er til dæmis gert ráð fyrir að talað mál vegi 20%, lestur og lesskilningur 15%, bókmenntir 25%, ritun 30% og mál og málnotkun 10% af lokaeinkunn.

Ráðuneytið segir markmiðið að lokaeinkunn gefi skýrari og gagnsærri mynd af stöðu nemenda og að námsmat verði sambærilegra milli skóla.

Nær til 4. og 7. bekkjar árið 2028

Annar áfangi breytinganna tekur gildi vorið 2028 og nær þá einnig til lokamats í 4. og 7. bekk.

Samhliða verður ráðist í frekari endurskoðun greinasviða aðalnámskrár með sérstakri áherslu á stærðfræði, náttúrufræði, íslensku og íslensku sem annað tungumál. Þar á að setja skýrari miðlæg viðmið um þá þekkingu, leikni og hæfni sem nemendur eiga að hafa náð á hverju skólastigi.

Fjölbreytt námsmat áfram

Ráðuneytið leggur áherslu á að tölueinkunnir komi ekki í stað faglegs mats kennara á hæfni, framförum og stöðu nemenda. Skólar verða hvattir til að nýta undirbúningstímann til að prófa tölukvarðann í öðrum árgöngum áður en breytingarnar taka að fullu gildi.

Breytingar verða gerðar á aðalnámskrá grunnskóla í vetur og Miðstöð menntunar og skólaþjónustu mun styðja skólana við innleiðinguna. Ráðuneytið hefur þegar átt samtal um breytingarnar við meðal annars Samband íslenskra sveitarfélaga, Kennarasamband Íslands, Skólameistarafélag Íslands, Heimili og skóla og fulltrúa háskólasamfélagsins.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila