Tölvur gætu valið upphafsstöður í nýju keppnisformi í skák

Kristján Örn Elíasson ræddi við Björgvin Víglundsson skákmeistara og byggingaverkfræðing í þættinum Við skákborðið um mögulegar breytingar á keppnisformi í skák. Björgvin velti upp þeirri hugmynd að tölvur á borð við AlphaZero gætu valið jafnar stöður sem skákmenn fengju síðan til úrvinnslu í stað þess að allar skákir hæfust á hefðbundinni upphafsstöðu. Með því mætti draga úr löngum fyrirframundirbúningi og krefja skákmenn fyrr um sjálfstæða hugsun. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Jöfn staða yrði upphaf skákarinnar

Kristján og Björgvin ræddu tímamörk í kappskák og hversu langar setur geta orðið. Björgvin sagði skákmenn geta setið í allt að 6 klukkustundir yfir einni skák og þá væri tankurinn orðinn tómur. Hann setti fram þá hugmynd hvort hægt væri að þróa annað mótaform þar sem tölva fyndi fyrirfram jafnar stöður. Skákmennirnir fengju eina slíka stöðu og skákin hæfist þaðan.

Staðan gæti komið úr byrjun, miðtafli eða endatafli.

Kristján spurði hvort þetta yrði sambærilegt við Fischer Random en Björgvin sagði svo ekki vera. Um hefðbundna skák yrði áfram að ræða. Einungis upphafspunkturinn væri annar.

Ekki hægt að undirbúa langa byrjanaröð

Björgvin taldi helsta kostinn vera að keppendur gætu ekki undirbúið ákveðna byrjun fyrir fram með sama hætti og nú. Skákmenn leggja nú mikla vinnu í tölvugreiningar og geta í sumum tilfellum teflt langar þekktar byrjanaraðir áður en þeir þurfa að finna eigin lausnir við borðið.

Kristján setti hugmyndina í samhengi við þá gagnrýni sem Magnus Carlsen hefur komið með á slíkan undirbúning þar sem fyrstu 10 til 20 leikirnir geti í raun verið afrakstur tölvuvinnu fyrir mótið.

Með fyrirfram valinni stöðu þyrftu keppendur að byrja strax að greina stöðuna sjálfir og finna eigin leiðir.

Tölvan gæti einnig gefið stig fyrir stöðuna

Björgvin gekk lengra með hugmyndina og velti upp öðru stigakerfi en hefðbundnu fyrirkomulagi þar sem sigur gefur 1 vinning, jafntefli hálfan og tap ekkert. Til að skákirnar yrðu ekki of langar gæti tölva metið stöðuna eftir fyrirfram ákveðinn fjölda leikja.

Keppendur fengju þá stig eftir því hvernig þeim hefði tekist að vinna úr upphafsstöðunni.

Það myndi brjóta upp ýmsar hefðir en Björgvin lagði áherslu á að áfram væri um raunverulega skák að ræða. Skákmaðurinn fengi einfaldlega stöðu sem hann hefði ekki sjálfur valið og þyrfti að leysa verkefnið sem hún fæli í sér.

Telur að svona fyrirkomulag verði prófað

Björgvin taldi hugmyndina raunhæfa þótt hún væri frábrugðin hefðbundnum skákmótum. Hann sagðist telja að eitthvað í þessa átt yrði einhvern tíma gert.

Slíkt fyrirkomulag gæti reynt meira á hreinan stöðuskilning og hæfni skákmannsins til að finna lausnir við borðið en á það hversu ítarlega hann hefði getað undirbúið ákveðna byrjun með tölvum áður en mótið hófst.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila