
Kristján Örn Elíasson ræddi við Helga Áss Grétarsson stórmeistara í skák í þættinum Við skákborðið um mikinn viðsnúning hjá Taflfélagi Reykjavíkur. Félagið var með 0 stig af 10 mögulegum og í fallhættu eftir fyrri hluta Íslandsmóts skákfélaga haustið 2025 en er nú efst eftir fyrri hluta nýs móts. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
O stig af 10 og fall blasti við
Helgi tók við liðsstjórn Taflfélags Reykjavíkur ásamt Gauta Páli Jónssyni, í byrjun árs eftir mjög erfiða stöðu félagsins. Liðið hafði ekki fengið eitt einasta stig úr fyrstu 5 viðureignunum og fall úr efstu deild var raunveruleg hætta.
Liðið var styrkt fyrir seinni hlutann með úkraínska stórmeistaranum Oleksienko á fyrsta borði og Sulypa kom einnig aftur til liðsins. 3 viðureignir unnust í röð og 6 stig tryggðu að félagið hélt sæti sínu í deildinni.
Helgi, Margeir Pétursson og Þröstur Þórhallsson voru meðal þeirra sem náðu mikilvægum vinningum í þeirri baráttu.
Breiddin lykillinn að árangrinum
Staðan er allt önnur nú. Taflfélag Reykjavíkur er efst eftir fyrri hluta mótsins og vann KR 6–2 í síðustu umferðinni.
Helgi lagði áherslu á hversu þétt og reynslumikið liðið væri. Í sveitinni eru fjölmargir stórmeistarar og Jón L. Árnason tefldi meðal annars á 8. borði, sem sýnir hversu mikil breiddin er.
Uppleggið hefur verið að halda jöfnu á fremstu borðunum en sækja vinningana á þeim aftari, þar sem félagið hefur að jafnaði mjög stigaháa skákmenn.
Gegn KR gekk enn betur en sú áætlun gerði ráð fyrir. Fyrstu 4 borðin unnust samanlagt 3–1 og sömu úrslit fengust á síðari 4 borðunum.
Markmiðið að halda sér í toppnum
Helgi fékk sjálfur 4 vinninga af 5 mögulegum í fyrri hluta keppninnar. Jón Viktor Gunnarsson náði einnig 4 af 5 og Þröstur Þórhallsson 2,5 vinningum úr 3 skákum.
Samstarf Helga og Gauta Páls í liðsstjórninni heldur áfram og markmiðið er að byggja ofan á þann árangur sem náðst hefur. Félagið vill skapa fasta liðsheild þar sem skákmennirnir tefla ekki aðeins fyrir eigin árangri heldur einnig fyrir sveitina.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
