
Treyjudagurinn er í dag 4. september sem er tileinkaður krabbameinssjúkum börnum. Fólk er hvatt til þess að klæðast treyjum í tilefni dagsins og minna á krabbameinssjúk börn og styrkja þau. Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu mætti í treyju frá norska landsliðinu í knattspyrnu. Arnþrúður mætti í símatímann í morgunn í treyju nr. 9 sem er merkt Erling Braut Haaland.

Norska karlalandsliðið vakti verulega athygli í Heimsmeistarakeppninni í Bandaríkjunum í júlí s.l, og ekki hvað síst fyrir glæsilega frammistöðu Braut Haaland sem nú er talinn einn besti knattspyrnumaður heims. Braut Haaland spilar með Manchester City og stendur sig afburða vel.
