Troðfullt hús á fundi Áfram Ísland á Selfossi – Næst fundað á Egilsstöðum

Áfram Ísland hélt opinn fund á Selfossi síðastliðinn miðvikudag þar sem troðfullt var í salnum. Á fundinum fluttu erindi Guðmundur Fertram, Margrét Hrund Arnarsdóttir, Bjarni Harðarson og Oddný Steina Valsdóttir sem ræddu meðal annars sjálfstæði Íslands, landbúnað, nýsköpun og efnahagsmál í tengslum við fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu.

Áhersla á sjálfstæði og árangur án ESB

Bjarni Harðarson sagði umræðuna um þjóðaratkvæðagreiðsluna eiga að snúast um sjálfstæði og framtíð Íslands. Hann hvatti til málefnalegrar umræðu og sagði mikilvægt að virða ólíkar skoðanir án persónuárása.

Guðmundur Fertram, stofnandi og forstjóri Kerecis, sagði reynslu sína sýna að smæð Íslands gæti verið styrkur í alþjóðlegri samkeppni. Hann lagði áherslu á að íslensk fyrirtæki gætu náð árangri á heimsmarkaði án aðildar að Evrópusambandinu.

Landbúnaður og fæðuöryggi

Oddný Steina Valsdóttir fjallaði um hugsanleg áhrif aðildar Íslands að Evrópusambandinu á íslenskan landbúnað. Hún sagði breytingar á stuðningskerfum og markaðsvernd geta haft áhrif á innlenda matvælaframleiðslu og skapað óvissu um framtíð greinarinnar.

Margrét Hrund Arnarsdóttir lagði áherslu á mikilvægi fæðuöryggis og sagði reynslu síðustu ára hafa sýnt hversu mikilvægt væri að viðhalda öflugri innlendri matvælaframleiðslu. Hún nefndi jafnframt að tækifæri væru til nýsköpunar og verðmætasköpunar í íslenskum landbúnaði.

Fundur á Egilsstöðum

Í lok fundarins var greint frá því að næsti opni fundur Áfram Ísland verði haldinn á Berjaya Hérað Hóteli á Egilsstöðum þriðjudaginn 28. júlí klukkan 17:30. Þar flytja erindi Aðalsteinn Jónsson, fyrrum bóndi, Anton Berg Sævarsson, húsasmiður og hagfræðinemi, Ásmundur Hálfdán Ásmundsson, tæknistjóri málmvinnslu hjá Alcoa Fjarðaáli, Herdís Magnea Gunnarsdóttir, kúabóndi á Egilsstöðum, og Elísabet Svava Kristjánsdóttir, ferðaþjónustubóndi í Möðrudal.

Smelltu hér til þess að skrá þig á fundinn.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila