Tvær alvarlegar líkamsárásir til rannsóknar á höfuðborgarsvæðinu

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði í nógu að snúast frá klukkan 17:00 í gær til klukkan 05:00 í morgun. Meðal alvarlegustu mála sem komu inn á borð lögreglu voru tvær líkamsárásir, önnur skráð sem meiri háttar líkamsárás í hverfi 105 og hin sem stórfelld líkamsárás í hverfi 108. Tveir eru vistaðir í fangageymslu.

Innbrot í heimili, fyrirtæki og skóla

Auk líkamsárásanna bárust tilkynningar um tvö innbrot í heimahús, annars vegar í hverfi 105 og hins vegar í hverfi 200.

Þá var einnig brotist inn í fyrirtæki í hverfum 101 og 203 auk þess sem tilkynnt var um innbrot í skóla í hverfi 270.

Sluppu með skrekkinn frá umferðarslysi

Lögregla sinnti umferðarslysi í hverfi 220 þar sem enginn slasaðist en ein bifreið varð óökufær.

Fjórir handteknir vegna gruns um fíkniefnaakstur

Fjórir ökumenn voru handteknir vegna gruns um akstur undir áhrifum fíkniefna.

Tveir þeirra eru einnig grunaðir um akstur sviptir ökuréttindum. Þá reyndist einn ökumaður án gildra ökuréttinda, á negldum hjólbörðum og á ótryggðri bifreið.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila