
Tvær nýjar sýningar verða opnaðar í Listasafni Íslands 3. október. Annars vegar verður myndbandsverkið Hula eftir Sigurð Guðjónsson sýnt í fyrsta sinn í fullri stærð eftir að safnið eignaðist verkið árið 2015 og hins vegar verður opnuð sýningin Kjarval á Austurlandi með landslags- og mannamyndum Jóhannesar S. Kjarvals.
Hula er klukkustundarlangt myndbandsverk frá árinu 2012, tekið í einni samfelldri töku á Skeiðarársandi. Myndavélin stendur kyrr á meðan vindurinn feykir svörtum foksandinum lag fyrir lag í átt að sjónarröndinni. Verkið er sýnt í samfelldri lykkju án greinilegs upphafs eða endis.
Hula sýnd í fullri stærð í fyrsta sinn
Í verkinu er sjónum beint að hreyfingu sandsins, tímanum og sífelldum breytingum náttúrunnar. Sandurinn vísar meðal annars til tímaglassins þar sem hann verður mælikvarði á framrás tímans.
Áhugi Sigurðar beinist jafnframt að efniskennd landslagsins og því hvernig hreyfing setur mark sitt á yfirborð þess. Listasafn Íslands keypti Hulu árið 2015 en nú verður verkið í fyrsta sinn sýnt í fullri stærð á stóru tjaldi. Pari Stave er sýningarstjóri.
Sýningin stendur til 3. janúar 2027.
Austurland í verkum Kjarvals
Sama dag opnar sýningin Kjarval á Austurlandi, þar sem sýndar verða landslagsmyndir og mannamyndir frá Austurlandi eftir Jóhannes S. Kjarval.
Kjarval ólst upp á Borgarfirði eystri og sneri þangað oft aftur á fullorðinsárum til að vinna að list sinni. Verkin á sýningunni spanna tímabilið 1919–1960 og eru flest úr safneign Listasafns Íslands. Þar verða olíumálverk, vatnslitamyndir, grafíkverk og túskteikningar.
Í sumum verkanna má þekkja staði á borð við Dyrfjöll og Álfaborg en önnur sækja efnivið í alþýðutrú. Sögur af álfum og huldufólki sem Kjarval kynntist á uppvaxtarárunum á Borgarfirði eystri höfðu mikil áhrif á myndheim hans.
Andlitsmyndirnar meðal gersema safnsins
Á sýningunni verða einnig andlitsmyndir af alþýðufólki á Borgarfirði eystri sem Kjarval gerði árið 1926. Myndirnar skipa sérstakan sess í íslenskri listasögu og eru taldar meðal gersema Listasafns Íslands.
Árið 1928 voru kaup á 50 þessara andlitsmynda fyrsta innkaupaverk nýstofnaðs menntamálaráðs fyrir Listasafn ríkisins. Listasafn Íslands á nú 53 verk úr myndröðinni og verður hluti þeirra sýndur á Kjarval á Austurlandi.
Anna Jóhannsdóttir er sýningarstjóri Kjarvals á Austurlandi og stendur sýningin til 14. febrúar 2027.
