
Tveir menn hafa verið handteknir erlendis í tengslum við rannsókn lögreglu á manndrápinu í Vallargerði í Kópavogi. Mennirnir voru handteknir hvor í sínu Evrópulandinu og sæta þar gæsluvarðhaldi. Alls hafa 11 verið handteknir hér á landi vegna málsins. Tveir þeirra sæta enn gæsluvarðhaldi en öðrum hefur verið sleppt.
Tveir handteknir í sitt hvoru landinu
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur notið aðstoðar Europol og lögregluyfirvalda í þeim tveimur Evrópulöndum þar sem mennirnir voru handteknir.
Rannsókn málsins er enn á frumstigi. Lögregla hefur meðal annars framkvæmt húsleitir víða og leitað í bifreiðum í tengslum við rannsóknina.
Eggvopnið hefur ekki fundist
Lögregla telur að eggvopni hafi verið beitt við árásina en vopnið hefur ekki fundist. Hinn látni var pólskur ríkisborgari.
Málið kom upp síðdegis á sunnudag þegar tilkynnt var um alvarlega líkamsárás í heimahúsi í Vallargerði. Maðurinn sem varð fyrir árásinni var fluttur á Landspítalann þar sem hann lést síðar sama dag.
Tengsl við skipulagða brotastarfsemi rannsökuð
Lögregla skoðar meðal annars hvort manndrápið tengist skipulagðri brotastarfsemi. Rannsóknin hefur því teygt sig út fyrir landsteinana og er unnin í samstarfi við erlend lögregluyfirvöld.
