Tveir létust í slysinu við Háreksstaðakvísl

Tveir erlendir ferðamenn á sjötugsaldri létust í alvarlegu umferðarslysi á þjóðvegi 1 við Háreksstaðakvísl á Jökuldal í gær. Tveir aðrir erlendir ferðamenn slösuðust alvarlega og voru fluttir með sjúkraflugi til Reykjavíkur. Fjórir bílar lentu í árekstri og voru 8 manns í bifreiðunum. Lögreglunni á Austurlandi barst tilkynning um slysið um klukkan hálf tólf í gær.

Umfangsmikið viðbragð var vegna slyssins og hópslysaáætlun virkjuð. Sjúkralið, björgunarsveitir, þyrla Landhelgisgæslunnar, Rauði krossinn og lögregla voru kölluð á vettvang.

Tveir fluttir alvarlega slasaðir til Reykjavíkur

Lögreglan greindi frá því í dag að 2 erlendir ferðamenn á sjötugsaldri hefðu látist í slysinu.

Tveir aðrir erlendir ferðamenn hlutu alvarleg meiðsli og voru fluttir með sjúkraflugi til Reykjavíkur.

Aðrir sem lentu í slysinu voru fluttir til aðhlynningar á Heilbrigðisstofnun Austurlands á Egilsstöðum. Meiðsli þeirra voru talin minniháttar og voru þeir útskrifaðir samdægurs.

Lögregla hafði áður greint frá því að allir sem lentu í slysinu væru erlendir ríkisborgarar. Hluti þeirra væri búsettur hér á landi en aðrir ferðamenn.

Tildrög slyssins rannsökuð

Aðgerðum viðbragðsaðila á vettvangi lauk í gær en þjóðvegi 1 um Jökuldal hafði verið lokað meðan unnið var á slysstað.

Rannsókn á tildrögum slyssins er í höndum Lögreglunnar á Austurlandi og Rannsóknarnefndar samgönguslysa.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila