Tveir úrskurðaðir í gæsluvarðhald vegna andláts í Kópavogi

Tveir karlmenn voru í dag úrskurðaðir í gæsluvarðhald í Héraðsdómi Reykjaness vegna rannsóknar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á andláti manns í Kópavogi í gær. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglu.

Gæsluvarðhaldið er á grundvelli rannsóknarhagsmuna. Annar mannanna verður í gæsluvarðhaldi til 21. ágúst en hinn til 17. ágúst. Annar þeirra er íslenskur ríkisborgari en hinn erlendur ríkisborgari.

Lést á Landspítalanum

Lögreglu var tilkynnt um alvarlega líkamsárás í heimahúsi í Kópavogi um miðjan dag í gær. Maðurinn sem varð fyrir árásinni var fluttur á Landspítalann þar sem hann lést síðdegis.

Hinn látni var erlendur ríkisborgari á fimmtugsaldri.

Rannsókn málsins heldur áfram

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar tildrög andlátsins en segir ekki unnt að veita frekari upplýsingar um málið að svo stöddu.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila