Úkraína og Ísland undirbúa samstarf um dróna

Úkraína og Ísland ætla að hraða undirbúningi samkomulags um samstarf á sviði ómannaðra loftfara og annarra ómannaðra varnarkerfa. Andrii Sybiha utanríkisráðherra Úkraínu ræddi málið við Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra á Íslandi á leið sinni til New York þar sem allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna fer fram. Þetta kemur fram í úkraínska fjölmiðlinum Unn.

Þetta var fyrsta tvíhliða heimsókn Sybiha til Íslands samkvæmt úkraínska utanríkisráðuneytinu. Hann millilenti hér á landi á leið sinni á fundaviku leiðtoga á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna.

Ráðherrarnir samþykktu að hraða undirbúningi samkomulags Íslands og Úkraínu um samstarf á sviði ómannaðra varnarkerfa.

Úkraína tilbúin að miðla reynslu sinni

Sybiha sagði Úkraínu reiðubúna að miðla þeirri reynslu sem landið hefur aflað sér af notkun dróna og vörnum gegn þeim í stríðinu við Rússland.

Sérstaklega nefndi hann reynslu Úkraínumanna af því að verja mikilvæga innviði. Rússar hafa ítrekað beint dróna- og eldflaugaárásum að orkumannvirkjum og öðrum mikilvægum innviðum landsins.

Sybiha upplýsti Þorgerði Katrínu jafnframt um stöðuna í Úkraínu, árásir Rússa, stöðuna á Svartahafi og tilraunir til að ná friði.

Samræmdu afstöðu fyrir allsherjarþing SÞ

Utanríkisráðherrarnir ræddu einnig helstu alþjóðamál fyrir fundaviku allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna.

Samkvæmt úkraínska utanríkisráðuneytinu var sérstök áhersla lögð á það sem stjórnvöld í Kænugarði kalla aðgerðir Rússa til að grafa undan stöðugleika í Evrópu og hvernig bregðast megi við þeim.

Þá ræddu ráðherrarnir um aukið samstarf Úkraínu við Sameiginlega viðbragðssveitina, JEF, sem Bretland leiðir og Ísland á aðild að.

Orkuöryggi Úkraínu fyrir veturinn

Orkuöryggi Úkraínu fyrir komandi vetur var einnig til umræðu. Sybiha þakkaði Íslandi fyrir áframhaldandi stuðning við Úkraínu og fyrir afstöðu íslenskra stjórnvalda í stríðinu.

Fundurinn kemur skömmu eftir að Volodymyr Zelensky Úkraínuforseti hitti Þorgerði Katrínu þegar hann átti leið um Ísland fyrr í september á leið til Kanada.

Þá var meðal annars rætt um undirbúning Úkraínu fyrir veturinn, varnir orkuinnviða og styrkingu loftvarna landsins.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila