
Ísland hefur frá upphafi allsherjarinnrásar Rússlands veitt sem svarar til um 16 milljarða króna í varnar- og mannúðaraðstoð við Úkraínu og þar að auki meira en 2,9 milljarða króna í PURL-áætlun NATO, samkvæmt upplýsingum frá forsetaembætti Úkraínu. Samtals eru þetta meira en 18,9 milljarðar króna miðað við núverandi gengi. Þetta kemur fram á vef forsetaembættis Úkraínu þar sem fjallað er um fund Volodómírs Selenskí Úkraínuforseta og Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra á Keflavíkurflugvelli 9. september.
2,9 milljarðar fara í bandarísk hergögn
PURL stendur fyrir Prioritised Ukraine Requirements List. Í gegnum áætlunina fjármagna NATO-ríki og samstarfsríki kaup á bandarískum hergögnum og skotfærum fyrir Úkraínu. Herstjórn NATO skilgreinir hvaða búnaður er brýnastur, ríkin leggja fram fjármagn og NATO samræmir afhendinguna.
Íslenska framlagið til PURL, sem úkraínsk stjórnvöld segja nú nema meira en 24 milljónum dala eða um 2,9 milljörðum króna, fer því sérstaklega til kaupa á hergögnum. PURL hefur meðal annars verið notað til að útvega loftvarnabúnað, eldflaugar og skotfæri.
Lítið vitað í hvað 16 milljörðunum var varið
Ísland hefur jafnframt lagt fé í Ukraine Energy Support Fund. Sjóðurinn kaupir búnað og varahluti til að halda rafmagns- og hitaveitukerfum Úkraínu gangandi. Úkraínsk stjórnvöld segja íslenskt fé þegar vera notað til kaupa á samvinnsluorkueiningu, aflspennum og öðrum mikilvægum búnaði.
Í febrúar tilkynnti ríkisstjórnin að 800 milljónir króna af stuðningi Íslands árið 2026 færu í brýna uppbyggingu raforkuinnviða Úkraínu. Íslensk orkufyrirtæki hafa auk þess gefið varahluti og annan búnað til viðhalds orkuinnviða.
Ekki liggur hins vegar fyrir í upplýsingum forsetaembættis Úkraínu hvernig 16 milljarða króna varnar- og mannúðaraðstoðin skiptist nákvæmlega milli einstakra verkefna.
