Um 40% ófaglærðir í vinnustaðaeftirliti á byggingarstöðum

Hjördís Vilhjálmsdóttir ræddi við Andra Rey Haraldsson, formann Félags íslenskra rafvirkja og varaformann Rafiðnaðarsambandsins, og Björn Ágúst Björnsson, stjórnarmann Matsmannafélags Íslands, í þættinum Skipulagsmál, um fagmenntun, eftirlit og gæði í byggingariðnaði. Andri sagði hlutfall ófaglærðra í vinnustaðaeftirliti síðustu mánaða hafa verið í kringum 40% og fagfélögin sæju tengsl milli menntunarstigs, öryggis og galla á byggingarstöðum. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Einn af hverjum 30 með staðfest sveinspróf

Hjördís vísaði til vinnustaðaheimsóknar á stórt byggingarsvæði í Garðabæ þar sem samkvæmt frétt sem hún las upp var aðeins einn starfsmaður af 30 með staðfest sveinspróf.

Á svæðinu var unnið við meðal annars húsasmíði, raflagnir, pípulagnir, múrverk, loftræstikerfi og járnabindingar. Í sömu heimsókn komu fram athugasemdir við öryggismál, meðal annars skort á persónuhlífum og ófullnægjandi fallvarnir.

Andri sagði slíka stöðu ekki óalgenga. Fagfélögin sæju reglulega byggingarstaði þar sem hlutfall iðnlærðra væri lágt, þótt dæmið með einn af 30 væri óvenju afgerandi.

Um 40% ófaglærðir í eftirlitinu

Þegar horft væri yfir vinnustaðaeftirlit síðustu mánaða væri hlutfall ófaglærðra einhvers staðar í kringum 40%, að sögn Andra. Hann tók fram að talan ætti við byggingarstaðina almennt en ekki sérstaklega fólk sem ynni við rafmagn.

Rafiðnaðurinn stæði að einhverju leyti betur en sumar aðrar greinar. Þó kæmi fyrir að fólk án fullra réttinda ynni við rafmagn, einkum í byggingargeiranum. Oft væri um að ræða fólk sem hefði hafið nám en ekki lokið því.

Andri sagði þörf á betri tölfræði en brotalamirnar væru engu að síður skýrar. Menntun skipti máli fyrir gæði og ábyrgð og fagmenntað fólk fengi jafnframt meiri þjálfun í öryggismálum.

Vantar úrræði þegar brotin finnast

Fagfélögin standa saman að vinnustaðaeftirliti en Andri sagði þau hafa mjög takmörkuð úrræði þegar þau kæmu á stað þar sem ófaglærðir ynnu störf sem krefðust réttinda.

Lögin væru fyrir hendi og tiltekin iðnaðarstörf lögvernduð en fagfélögin hefðu ekki sjálf sektarheimildir. Hægt væri að kalla til lögreglu en hún hefði takmarkað fjármagn og mannafla til að sinna slíkum málum.

Sektarheimildir til stéttarfélaganna eða HMS

Hann sagði koma til greina að færa sektarheimildir vegna brota á iðnlöggjöfinni annaðhvort til stéttarfélaganna eða Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar. Vinnueftirlitið hefði þegar heimildir til að beita sektum vegna brota á reglum um aðbúnað, öryggi og hollustuhætti en þeim væri að hans sögn lítið beitt.

Andri lagði áherslu á að aukin fagmenntun væri ekki aðeins hagsmunamál iðnaðarmanna. Hún snerist um gæði mannvirkja, öryggi þeirra sem vinna verkin og öryggi þeirra sem síðar búa í húsunum.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila