Um 700 íbúðir deila 150 útibílastæðum í Gufunesi

Hjördís Vilhjálmsdóttir ræddi við Símon Þorkel Símonarson Olsen, íbúa í Gufunes,i í þættinum Skipulagsmál í dag, um bílastæðaskortinn í Jöfurbási í Gufunesi. Símon sagði um 150 útibílastæði vera fyrir hús númer 1 til 11 en þegar uppbyggingunni lyki yrðu um 700 íbúðir á svæðinu. Hluti íbúða hefur aðgang að stæðum í bílakjöllurum en aðrir íbúar þurfa að keppa um útistæðin. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Fleiri íbúðir bætast við en stæðunum fjölgar ekki

Símon sagði eitt hús enn vera í byggingu og þegar því verkefni lyki yrðu um 700 íbúðir á svæðinu. Í sumum húsum fylgja bílastæði í kjallara í stærri íbúðum en ekki öllum. Hann nefndi sérstaklega húsin sem Baltasar Kormákur er að byggja og sagði þar ekki fylgja stæði í kjallara, með öllum íbúðum.

Lóð fyrir fleiri stæði þegar seld

Símon hafði lagt til að stórt autt tún við Kúluhúsið yrði nýtt undir fleiri bílastæði. Í vor fékk hann þau svör að það væri ekki hægt þar sem lóðirnar hefðu þegar verið seldar til frekari uppbyggingar í Jöfurbási.

Hann spurði hvort Reykjavíkurborg gæti keypt landið aftur og nýtt það til að bæta innviði fyrir þá byggð sem þegar væri risin. Nokkrum mánuðum síðar fékk hann þau svör að slíkt væri of dýrt.
Símon gagnrýndi að haldið væri áfram að fjölga íbúðum áður en búið væri að leysa bílastæðavandann sem fyrir væri.

10 þúsund króna sekt í hvert skipti

Skorturinn hefur leitt til þess að fólk leggur þar sem það finnur pláss og fær fyrir vikið stöðumælasektir. Símon sagði sektina vera 10 þúsund krónur í hvert skipti. Sumir íbúar færu fyrr heim úr vinnu til að reyna að ná stæði og færu jafnvel ekki aftur út í búð eftir að þeir væru komnir heim af ótta við að missa það.

Skorturinn hefði einnig valdið ágreiningi milli íbúa. Fólk hefði reynt að taka frá einstök stæði og deilur skapast um bíla sem væri lagt milli húsa eða þar sem þeir gætu verið fyrir sorphirðu.

Fyrirmælin um sektirnar skiluðu sér ekki

Símon sagði sig hafa rætt við Hildi fyrir og eftir kosningar og hún hefði gefið út að ekki ætti að sekta íbúana við þessar aðstæður. Hann hefði síðan hitt starfsmann Bílastæðasjóðs og spurt hvort hann vissi af fyrirmælunum. Starfsmaðurinn kannaðist ekkert við þau.

Annar starfsmaður hefði heyrt af málinu en sagt að breytingin fælist í því að komið yrði tvisvar í mánuði í stað þess að sekta alla daga vikunnar.

Íbúarnir hafa því óskað eftir skriflegri staðfestingu á því að ekki verði sektað þar til borgin hefur brugðist við bílastæðaskortinum.

Vilja að sektir frá því í júní verði felldar niður

Í þættinum hvatti Hjördís borgarstjórn til að tryggja að fyrirmæli um að hætta sektunum yrðu framkvæmd. Símon bætti við að einnig þyrfti að skoða sektir sem hefðu verið lagðar á íbúa frá því í júní.

Íbúarnir vilji fyrst og fremst fleiri bílastæði og skýra niðurstöðu um hvernig borgin ætlar að leysa vandann áður en uppbyggingin á svæðinu heldur áfram.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila