
Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Valgerði Snæland Jónsdóttur, fyrrverandi skólastjóra, sérkennslufræðing og löggiltan náms- og starfsráðgjafa og Leif Árnason, fyrrverandi flugstjóra í þættinum Fréttir vikunnar, um ummæli Heimis Más Péturssonar, framkvæmdastjóra Flokks fólksins og upplýsingafulltrúa þingflokksins. Samkvæmt frétt Morgunblaðsins, sem Arnþrúður rakti í þættinum, hvatti Heimir Már, Emmanuel Macron Frakklandsforseta á samfélagsmiðlinum X til að senda herlið til Úkraínu og hafa kjarnavopn tilbúin til notkunar. Leifur varaði við því að slík ummæli gætu beinlínis skaðað Ísland, en Valgerður kallaði eftir skýrari ábyrgð þeirra sem gegna trúnaðarstöðum innan stjórnmálaflokka. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Heimir Már hefur sett Ísland í hættu
Leifur varaði við þeim afleiðingum sem ummæli Heimis Más gætu haft fyrir Ísland og samskipti landsins við aðrar þjóðir. Þótt hann nyti málfrelsis og tjáningarfrelsis þyrfti að huga að því hvernig slíkar yfirlýsingar væru túlkaðar erlendis, sérstaklega þegar þær kæmu frá einstaklingi í áhrifastöðu innan íslensks stjórnmálaflokks. Sömuleiðis væri hann að hvetja til ódæðisverka sem geta sett mannslíf í hættu.
Leifur sagði að Heimir hefði ekki hugsað nægilega um afleiðingar þeirra. Hann undraðist jafnframt hversu herská sjónarmið kæmu fram meðal einstaklinga sem tengdust íslenskum stjórnmálum.
Spyr hvort forsvarsmaður flokks geti talað fyrir hönd þjóðarinnar
Valgerður beindi sjónum að þeirri ábyrgð sem fylgdi stöðu Heimis Más innan Flokks fólksins. Hann væri ekki aðeins einstaklingur sem tjáði eigin skoðanir heldur gegndi starfi framkvæmdastjóra flokksins og upplýsingafulltrúa þingflokksins.
Hún spurði hvort slík yfirlýsing gæti orðið til þess að aðrar þjóðir litu svo á að hann talaði fyrir hönd Íslendinga. Enginn hefði leitað samþykkis almennings fyrir því að hvetja erlend stjórnvöld til hernaðaraðgerða eða undirbúnings að beitingu kjarnavopna.
Valgerður velti einnig fyrir sér hvaða reglur og siðareglur giltu um opinbera framkomu forsvarsmanna stjórnmálaflokka, sérstaklega þegar þeir tækju þátt í umræðu um alþjóðleg átök.
Hún spurði jafnframt hvort með slíkum orðum væri verið að hvetja til þess að ungir Íslendingar yrðu sendir á vígvöllinn.
Ummælin kalla á viðbrögð Flokk fólksins
Arnþrúður sagði ummælin hljóta að verða Flokki fólksins umhugsunarefni vegna stöðu Heimis Más innan flokksins. Hún vakti athygli á að fólk gæti túlkað yfirlýsingu framkvæmdastjóra og upplýsingafulltrúa þingflokks sem afstöðu flokksins sjálfs, jafnvel þótt hún hefði ekki verið samþykkt af forystu hans.
Arnþrúður tók sérstaklega fram að hún sæi ekki að hvatning til hernaðaraðgerða af þessu tagi samræmdist stefnu Flokks fólksins. Ummælin gætu engu að síður sent röng skilaboð frá Íslandi út í alþjóðlega stjórnmálaumræðu. Hún taldi að flokkurinn þyrfti að taka málið til skoðunar og viðbragða mætti búast við.
Valgerður tók undir að um alvarlegt mál væri að ræða og stjórnmálamenn og forsvarsmenn flokka yrðu að gera sér grein fyrir þeirri ábyrgð sem fylgdi opinberum yfirlýsingum þeirra.
Vara við herskárri orðræðu í íslenskum stjórnmálum
Rætt var um hversu langt einstaklingar í íslenskum stjórnmálum ættu að ganga í yfirlýsingum um þátttöku í erlendum stríðsátökum.
Leifur sagði herská orðræða af þessu tagi vera ólíka þeirri íslensku menningu sem hann þekkti. Sérstaklega væri alvarlegt þegar rætt væri um að hafa kjarnavopn tilbúin til notkunar.
Valgerður lagði áherslu á að þeir sem gegndu ábyrgðarstöðum yrðu að gæta orða sinna í samskiptum við erlenda leiðtoga. Hún taldi ekki sjálfgefið að persónulegar skoðanir þeirra endurspegluðu vilja íslensku þjóðarinnar.
Þegar forsvarsmaður stjórnmálaflokks hvetti til hernaðaraðgerða og nefndi kjarnavopn gætu ummælin haft víðtækari áhrif en venjuleg skoðanaskipti á samfélagsmiðlum.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
