Undirbúningur vegna almyrkvans á lokastigi víða um land

Undirbúningur vegna almyrkvans sem verður 12. ágúst er víða kominn á lokastig. Þetta kemur fram í minnisblaði stýrihóps Stjórnarráðsins sem lagt var fyrir ríkisstjórn í síðustu viku. Stjórnvöld ítreka fyrri tilmæli sín um að landsmenn á suðvesturhorni landsins og vestanverðu landinu njóti almyrkvans heima eða í sínu nærumhverfi, fremur en að leggja af stað í langferðir á vinsæla útsýnisstaði.

Mikill viðbúnaður á Vestfjörðum

Vestfirðir eru taldir verða eitt helsta álagssvæði almyrkvans. Við Látrabjarg hefur verið unnið að stækkun bílastæða, bættri salernisaðstöðu, afmörkun bjargbrúnar og fjölgun landvarða. Jafnframt er unnið að því að bæta farsímasamband á svæðinu og undirbúa umferðarstýringu og mögulegar lokanir ef gestafjöldi fer yfir þolmörk einstakra svæða.

Á sjálfan almyrkvadaginn verður vegurinn um Látrabjarg gerður einstefna og stærri ökutækjum en 19+1 farþega verður óheimilt að aka um Örlygshafnarveg og Rauðasandsveg.

Búast við miklum mannfjölda á Vesturlandi

Á Vesturlandi er undirbúningur einnig langt kominn. Þar hefur meðal annars verið unnið að skipulagi umferðar, bílastæða, þjónustu, náttúruverndar og viðbúnaðar lögreglu og heilbrigðisstofnana.

Stjórnvöld telja líklegt að margir sem ákveða ferðalag með skömmum fyrirvara muni velja Vesturland fremur en Vestfirði. Því er búist við miklu álagi á Hvalfjarðargöng og Borgarfjarðarbrú.

Áhersla á að draga úr umferðarálagi

Sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu hafa unnið sameiginlega aðgerðaráætlun þar sem lögð er áhersla á markvissa upplýsingagjöf til að dreifa ferðamönnum og draga úr álagi á vinsælustu áfangastaðina. Á Reykjanesi beinist undirbúningurinn meðal annars að mögulegu álagi vegna einkaflugvéla, drónaflugs og fjölmennra samkomna á vinsælum útsýnisstöðum, auk aukinnar umferðar á Reykjanesbraut.

Lögregla og Landhelgisgæsla auka viðbúnað

Lögregluembætti á áhrifasvæðunum hafa fengið heimild til að standa straum af nauðsynlegum kostnaði vegna viðbúnaðar, sem á að tryggja aukna viðbragðsgetu og greiðari umferð á meðan almyrkvinn stendur yfir. Samkvæmt almannavarnadeild ríkislögreglustjóra má búast við mikilli umferð frá þremur dögum fyrir almyrkvann og fram að tveimur dögum eftir hann.

Landhelgisgæslan verður með tvær þyrlur og tvær áhafnir til taks í Reykjavík auk þess sem þriðja áhöfn verður í viðbragðsstöðu. Varðskipið Freyja verður staðsett undan Vesturlandi og nýir aðgerðarbátar Gæslunnar verða við Snæfellsnes og á Suðurnesjum til að sinna löggæslu á hafi ef þörf krefur.

Farþegaflutningar á sjó aðeins með tilskildum leyfum

Samgöngustofa og Landhelgisgæslan minna jafnframt á að þeir sem hyggjast bjóða upp á farþegaflutninga á sjó vegna almyrkvans verði að hafa til þess tilskilin leyfi.

Stýrihópur Stjórnarráðsins telur að umfangsmikill undirbúningur sveitarfélaga, viðbragðsaðila og ríkisstofnana sé lykilforsenda þess að hægt verði að taka á móti þeim mikla fjölda gesta sem búist er við með öruggum hætti.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila