
Forsætisráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Utanríkisráðuneytið og Dómsmálaráðuneytið hafa sent frá sér sameiginlega tilkynningu þar sem segir að um nokkurt skeið hafi verið unnið að því að kortleggja og efla áfallaþol á vegum stjórnvalda. Þá sé stefnt að auknu samstarfi við atvinnulífið og hagsmunaaðila um það mikilvæga verkefni. Markmiðið sé að auka yfirsýn, efla samhæfingu og auka viðbúnað stjórnvalda gagnvart margvíslegri vá, þar á meðal vegna aukinnar óvissu í alþjóðlegu umhverfi.
Forsætisráðuneytið leiðir starf stýrihóps Stjórnarráðsins um eflingu áfallaþols en í honum eiga sæti fulltrúar forsætisráðuneytisins, dómsmálaráðuneytisins, utanríkisráðuneytisins og innviðaráðuneytisins. Dómsmálaráðuneytið og almannvarnir gegna lykilhlutverki við heildræna eflingu áfallaþols en hvert ráðuneyti ber ábyrgð á eflingu áfallaþols, undirbúningi og viðbrögðum innan síns málefnasviðs í samræmi við sviðsábyrgðareglu almannavarna.
Samhliða stýrihópnum starfa sérhæfðir vinnuhópar sem sinna greiningu og undirbúningi á afmörkuðum sviðum, m.a.:
- samstarfi stjórnvalda og atvinnulífs,
- stjórnskipulagi á hættutímum,
- samhæfðri lagasetningu á sviði áfallaþols,
- efnahagslegu öryggi og aðfangakeðjur,
- vernd mikilvægra innviða á Reykjanesinu.
Markmiðið með vinnunni er að efla getu stjórnvalda, í nánu samstarfi við atvinnulífið, til að greina viðkvæmni, bregðast tímanlega við röskunum og grípa til markvissra mótvægisaðgerða áður en alvarleg áhrif koma fram. Fyrirtæki og rekstraraðilar mikilvægra innviða gegna lykilhlutverki, bæði í aðfangakeðjum og við að tryggja samfellu í lykilþjónustu samfélagsins. Þessu nýja fyrirkomulagi er ætla að styðja við aukið áfallaþol og skerpa á ábyrgð, efla samhæfingu og auka samvinnu stjórnvalda og atvinnulífs.
