
Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Jón Bjarnason, fyrrverandi sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra í ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur í síðdegisútvarpinu á Útvarpi Sögu um IPA-styrki sem tengdust aðildarumsókn Íslands árið 2009. Jón sagði Ísland ekki hafa gert grein fyrir öllum þeim fjármunum sem komu frá ESB til Íslands. Skýra þyrfti hvert peningarnir fóru, áður en aðildarferlið færi af stað núna. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Fjármunirnir verði gerðir upp
Jón fór með sjávarútvegs- og landbúnaðarmál í ríkisstjórn Samfylkingarinnar og Vinstri grænna undir forystu Jóhönnu Sigurðardóttur og Steingríms J. Sigfússonar þegar sótt var um aðild að Evrópusambandinu árið 2009.
Arnþrúður benti á að umræðan um IPA-styrkina yrði endurvakin ef nýtt aðildarferli færi af stað. Því þyrftu upplýsingar um úthlutun fjármunanna og viðtakendur að liggja á borðinu strax, áður en kosningar færu fram þann 29. ágúst n.k.
Jón sagði að Ísland hefði ekki gert grein fyrir öllum þeim fjármunum sem fengust frá Evrópusambandinu. Ræða þyrfti opinberlega hvert fjármunirnir fóru og hvernig þeim var ráðstafað.
Aðspurður hvort rannsaka ætti úthlutunina svaraði Jón því játandi. Hann sagði nauðsynlegt að fara yfir verkefnin, viðtakendurna og ákvarðanirnar sem lágu að baki styrkveitingunum.
Styrkir til aðlögunar
Aðspurður um tilgang styrkjanna sagði Jón þá vera hluta af aðildarferli Evrópusambandsins. Þeir hefðu meðal annars átt að fjármagna breytingar á stjórnsýslu, uppbyggingu stofnana og eftirlitskerfa ásamt innleiðingu laga og reglna.
Jón sagði Evrópusambandið ekki hafa farið leynt með tilgang aðstoðarinnar. Hún hefði átt að búa íslenska stjórnsýslu undir hugsanlega aðild. Minna hefði hins vegar farið fyrir opinberri umræðu hér á landi um móttöku fjármunanna og áhrif þeirra.
Arnþrúður spurði hver hefði tekið ákvörðun um hvaða stofnanir, einstaklingar, félagasamtök og verkefni fengju styrki. Jón svaraði því til að komið hefði verið á ákvörðunarferli innan stjórnkerfisins. Hann sagðist ekki geta fullyrt hver það hafi verið en teldi að það hafi verið utanríkisráðuneytið sem kom að vali verkefna og fjármunirnir farið í gegnum ráðuneytið.
Í þættinum var einnig rætt um hvort byrjað hefði verið að taka við fjármunum áður en aðildarviðræður hófust. Jón vísaði til frásagnar Össurar Skarphéðinssonar í bókinni Ár drekans um átökin vegna afgreiðslu málsins á Alþingi.
Sumir höfnuðu styrkjunum
Jón sagði ráðuneyti sitt hafa neitað IPA-styrkjum sem ætlaðir voru til að breyta eða hafa áhrif á stofnanir sem heyrðu undir það.
Hann sagði Ögmund Jónasson einnig hafa hafnað slíkum fjármunum fyrir stofnanir síns ráðuneytis. Bændasamtökin hefðu sömuleiðis neitað að taka við styrkjum til að breyta starfsemi samtakanna fyrir erlent fé.
Jón sagði nauðsynlegt að upplýsingar um styrkina, úthlutun þeirra og viðtakendur lægju fyrir áður en aðildarferlið yrði tekið upp að nýju. Ekki væri hægt að hefja nýja vegferð án þess að gera fyrst grein fyrir fjármununum sem komu til Íslands vegna fyrri umsóknarinnar.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
