
Fulltrúi rússneska sendiráðsins í Reykjavík var kallaður á fund í utanríkisráðuneytinu í dag þar sem íslensk stjórnvöld gerðu alvarlegar athugasemdir við meint framferði Rússlands og áréttuðu samstöðu sína með Þýskalandi vegna drónaatviksins í Leipzig 4. ágúst. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra segir stuðning Íslands við Úkraínu staðfastan og að hann verði það áfram.
Martin Eyjólfsson ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytisins kallaði fulltrúa rússneska sendiráðsins á fund sinn. Þetta kemur fram í tilkynningu frá ráðuneytinu.
Þýsk stjórnvöld hafa rannsakað drónaatvikið sem varð í Leipzig 4. ágúst og segja rannsóknir sínar staðfesta að aðilar með tengsl við rússnesk yfirvöld beri ábyrgð á því.
Gerðu alvarlegar athugasemdir við meint framferði Rússlands
Íslensk stjórnvöld áréttuðu samstöðu sína með Þýskalandi á fundinum og gagnrýndu aðgerðir rússneskra stjórnvalda harðlega.
„Við gerðum alvarlegar athugasemdir við framferði Rússlands og þær fjölþáttaðgerðir sem stjórnvöld í Moskvu beita til að grafa undan öryggi Evrópu og hafa áhrif á stuðning Þýskalands og annarra bandalagsríkja Atlantshafsbandalagsins við varnarbaráttu Úkraínu,“ segir Þorgerður Katrín.
Íslensk stjórnvöld fordæmdu jafnframt stríðsrekstur Rússlands í Úkraínu og þá stigmögnun sem þau segja nú eiga sér stað með loftárásum Rússa á almenna borgara og borgaralega innviði.
Segir stuðning Íslands við Úkraínu óbreyttan
Þorgerður Katrín segir íslensk stjórnvöld hafa komið því skýrt á framfæri við fulltrúa rússneska sendiráðsins að atvikið í Þýskalandi muni ekki draga úr stuðningi Íslands við Úkraínu.
„Við gerðum fulltrúa rússneska sendiráðsins kyrfilega grein fyrir því að stuðningur Íslands við Úkraínu sé staðfastur og verði það áfram,“ segir Þorgerður Katrín.
