Utanríkisþjónustan gengur of mikið í takt við ráðherrann

Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Stefán Pálsson, sagnfræðing og varaborgarfulltrúa Vinstrisins, í síðdegisútvarpinu um umfjöllun erlendra fjölmiðla um þjóðaratkvæðagreiðsluna og þátt íslensku utanríkisþjónustunnar í þeirri mynd sem dregin hefur verið upp af Íslandi erlendis. Stefán sagði hefðir innan utanríkisþjónustunnar hafa breyst og hún virtist nú ganga mun meira í takt við pólitíska stefnu utanríkisráðherra en áður. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Erlendir fjölmiðlar töldu Ísland á leið inn í ESB

Arnþrúður vakti athygli á umfjöllun erlendra fjölmiðla fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna og nefndi sérstaklega grein CNBC sem hefði innihaldið fjölmargar rangfærslur. Þar hefði verið fjallað um málið með þeim hætti að ætla mætti að Ísland væri þegar á leið inn í Evrópusambandið.

Hún sagði einnig að margir erlendir fjölmiðlar virtust hafa misskilið hvað Íslendingar væru að kjósa um og fjallað um þjóðaratkvæðagreiðsluna eins og kosið væri beint um inngöngu í ESB en ekki hvort halda ætti áfram aðildarviðræðum.

Stefán sagði erlenda blaðamenn meðal annars ræða við íslenska diplómata þegar þeir leituðu skýringa á íslenskum stjórnmálum. Í því samhengi gagnrýndi hann þróun innan íslensku utanríkisþjónustunnar.

Diplómatar áður orðvarir í pólitískum deilum

Stefán sagði að áður hefði verið hægt að treysta því að íslenskir diplómatar væru orðvarir og blönduðu sér ekki í heitar pólitískar deilur. Nú virtist utanríkisþjónustan hins vegar stundum ganga öll í takt við stefnu ráðherrans.

Hann nefndi sem dæmi að íslenskir sendiherrar kæmu fram í pólitískum hlaðvörpum. Slík þátttaka hefði þótt fráleit fyrir fáeinum árum og sýndi að hans mati hvernig hefðir utanríkisþjónustunnar hefðu breyst.

Arnþrúður benti jafnframt á að erlendir miðlar hefðu vitnað í íslenska fræðimenn og sérfræðinga í umfjöllun sinni. Þannig hefði erlendis orðið til sú mynd að ESB-aðild væri lausnin fyrir Ísland og að landið stefndi inn í sambandið.

Erlendir blaðamenn koma oft með tilbúna frásögn

Stefán sagði erlenda blaðamenn oft koma til Íslands með fyrirfram mótaða frásögn og reyna síðan að skýra íslensk kosningaúrslit út frá stórum heimspólitískum málum. Hann nefndi Grænland og Úkraínustríðið sem dæmi en sagði íslenska kjósendur oft taka afstöðu út frá mun hversdagslegri málum.

Hann benti á að saga Íslands um yfirráð yfir landhelginni og minningarnar um þorskastríðin skiptu enn máli. Þótt sífellt fleiri Íslendingar byggju á höfuðborgarsvæðinu og hefðu lítil bein tengsl við sjávarútveg, snerust íslensk stjórnmál enn að verulegu leyti um fisk og yfirráð yfir auðlindum.

Eftir að niðurstaða þjóðaratkvæðagreiðslunnar lá fyrir birtist jafnframt sú túlkun erlendis að Íslendingar óttuðust Evrópusambandið meira en Donald Trump. Arnþrúður vakti athygli á þeirri umfjöllun og Stefán sagði hana draga upp mjög skakka mynd af þeim ástæðum sem réðu afstöðu íslenskra kjósenda.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila