Útför Björgvins Halldórssonar fer fram í Hallgrímskirkju í dag

Útför Björgvins Halldórssonar fer fram í Hallgrímskirkju í dag þar sem fjölskylda, vinir og þjóðin öll kveðja einn ástsælasta tónlistarmann Íslands. Athöfnin hefst klukkan 15 og verður opin almenningi. Séra Guðni Már Harðarson jarðsyngur við útförina en einnig verður hægt að fylgjast með henni í beinni útsendingu í sjónvarpi og á netinu á vef Vísir en smella má hér til þess að sjá útsendingu Vísis.

Valinn poppstjarna ársins nítján ára gamall

Björgvin Helgi Halldórsson fæddist í Hafnarfirði 16. apríl árið 1951 og lést 9. apríl síðastliðinn, skömmu fyrir 75 ára afmæli sitt. Hann var einn þekktasti og vinsælasti söngvari landsins um áratugaskeið og skildi eftir sig djúp spor í íslenskri tónlistarsögu.

Hann hóf tónlistarferil sinn ungur að árum og söng fyrst með hljómsveitinni Bendix áður en hann gekk til liðs við Flowers. Síðar varð hann landsþekktur með hljómsveitum á borð við Ævintýri, Brimkló, Ðe lónlí blú bojs, HLH-flokknum og Hljómum.

Björgvin var valinn poppstjarna ársins árið 1969, aðeins nítján ára gamall, og á ferli sínum flutti hann fjölda laga sem urðu síðar sígild í íslensku tónlistarlífi. Meðal þekktustu laga hans eru Þú komst með jólin til mín, Gullvagninn og Þó líði ár og öld. Þá keppti hann fyrir Íslands hönd í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva árið 1995 með lagið Núna.

Rödd Stöðvar 2 og Jólagestir Björgvins

Auk tónlistarferilsins starfaði Björgvin um árabil sem þulur og var meðal annars rödd Stöðvar 2. Hann hélt einnig jólatónleikana Jólagestir Björgvins ár hvert en þeir voru haldnir í síðasta sinn árið 2024. Þá stýrði hann sjónvarpsþáttunum Jólastjarna Björgvins þar sem ungir söngvarar kepptu um að fá að koma fram á jólatónleikum hans.

Björgvin var sæmdur riddarakrossi Hinnar íslensku fálkaorðu árið 2011 fyrir framlag sitt til íslenskrar tónlistar. Árið 2019 fékk hann stjörnu með nafni sínu á gangstétt í Strandgötunni í Hafnarfirði og voru þá haldnir sérstakir heiðurstónleikar honum til heiðurs.

Útvarpsstöðvar sameinast til minningar um Björgvin

Allar útvarpsstöðvar landsins munu sameinast klukkan eitt í dag til að minnast Björgvins með stuttri dagskrá. Að henni lokinni verður lagið Ég skal syngja fyrir þig leikið samtímis um land allt.

Í útförinni verða meðal annars flutt lögin Þig dreymir kannski engil og Skýið. Börn Björgvins, Svala og Krummi, koma fram ásamt fjölda tónlistarmanna, þar á meðal Daníel Ágústi, Eyþóri Inga og Sigríði Thorlacius. Þá mun kórinn Fóstbræður einnig taka þátt í athöfninni.

Í kvöld kl.23:00 verður endurflutt viðtal Rúnars Þórs við Björgvin þar sem farið er yfir feril hans. Þátturinn er frá árinu 2015.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila