Úttekt á íslenska kvikmyndaendurgreiðslukerfinu: 1 króna verður 6,8 krónur

Á dögunum stóð menningar- og viðskiptaráðuneytið fyrir kvikmyndaráðstefnu í Hörpu undir yfirskriftinni Aukum verðmætasköpun í Kvikmyndagerð á Íslandi til framtíðar. Ráðstefnan var ákaflega vel sótt og mikill áhugi fyrir niðurstöðum úttektar breska ráðgjafafyrirtækisins Olsberg•SPI um efnahagslegan ávinning af íslenska kvikmyndaendurgreiðslukerfinu. Endurgreiðslukerfi eru talin vera hornsteinn alþjóðlegra verkefna í kvikmyndaiðnaði og eru virk í yfir 100 löndum og ríkjum.

„Íslandi hefur tekist að koma á afar vel heppnuðu endurgreiðslukerfi og gera það þjóðhagslega hagkvæmt. Kerfið er einfalt og virkar nokkuð hratt sem er lykilinn. Það eru lönd sem bjóða upp á hærri endurgreiðslu en Ísland, en kerfisvirknin er oft á tíðum svifasein og flókin sem dregur úr skilvirkni þeirra í samanburði við það kerfi sem hér hefur verið komið á,“ segir Jonathan Olsberg einn eigandi  Olsberg•SPI og sérfræðingur í efnahagslegum áhrifum kvikmyndagerðar.

Hann bendir einnig á mikilvægi þess að byggja á sterkum grunni og segir að íslenska endurgreiðslukerfið hefði aldrei náð þessum mikla árangri ef ekki væri fyrir vandaða innlenda kvikmyndagerð og aðgengi að fagfólki.

Í úttektinni kemur fram að endurgreiðslukerfið hafi skilað sér með jákvæðum hætti fyrir íslenskt efnahagslíf og hver króna sem varið hefur verið til kvikmyndagerðar í kerfinu á umræddu tímabili hefur skilað sér til baka í 6,8 krónum með beinum, óbeinum og afleiddum hætti.

Efnahagsleg umsvif kvikmyndagerðar á árunum 2019-2022 námu samtals 237,9 milljörðum króna í uppsöfnuðum beinum, óbeinum og afleiddum efnahagslegum áhrifum af endurgreiðsluhæfum kvikmyndaverkefnum á tímabilinu.

Endurgreiðsluhæf kvikmynda- og sjónvarpsverkefni skiluðu 18,8 milljörðum króna í beinum virðisauka (e. gross value added), 22,8 milljörðum króna í óbeinum virðisauka og 41,2 milljörðum króna í afleiddum vergum virðisauka – samtals 82,7 milljörðum króna í aukinni verðmætasköpun.

Heildaratvinnutekjur þeirra sem störfuðu hér á landi við kvikmyndagerð í tengslum við endurgreiðsluhæf framleiðsluverkefni námu 48,9 milljörðum króna á árunum 2019-2022. Árið 2022 störfuðu 900 manns við hér á landi við kvikmyndagerð í tengslum við endurgreiðsluhæf framleiðsluverkefni eða samtals 4.200 bein, óbein eða afleidd störf.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila