VÆB frumflytur lag Barnamenningarhátíðar í Breiðholtsskóla

Tónlistardúóið VÆB frumflytur lag Barnamenningarhátíðar 2026 í Breiðholtsskóla miðvikudaginn 15. apríl kl. 12:30 að viðstöddum nemendum skólans. Lagið ber heitið Sama hver það er og verður síðar flutt við opnun hátíðarinnar.

Lag byggt á hugmyndum barna

VÆB skipa bræðurnir Matthías Davíð Matthíasson og Hálfdán Helgi Matthíasson. Texti lagsins er unninn upp úr svörum nemenda í 4. bekk í Reykjavík sem fengu það verkefni að útskýra hugtökin samkennd og samfélag, sem eru þema hátíðarinnar í ár.

Flutt á opnun í Hörpu

Lagið verður einnig flutt á opnunarviðburði Barnamenningarhátíðar í Eldborgarsal Hörpu 20. apríl þar sem búist er við fjölmennum hópi barna.

Tugþúsundir barna taka þátt

Barnamenningarhátíð stendur yfir dagana 20.–26. apríl og nær til viðburða um alla borg. Árlega taka um 10.000 börn þátt í dagskránni með einum eða öðrum hætti.

Öllum viðburðum hátíðarinnar er ætlað að vera aðgengilegir og er frítt inn fyrir börn og fjölskyldur þeirra.

Smelltu hér til þess að skoða dagskrá hátíðarinnar nánar.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila