Valgerður: Skipting í vini og óvini komin inn í skóla, félög og fjölskyldur

Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Valgerði Snæland Jónsdóttur, fyrrverandi skólastjóra og kennara til margra ára, í síðdegisútvarpinu, um skiptingu fólks í vini og óvini sem Valgerður segir eitt helsta einkenni woke-hugmyndafræðinnar. Hún sagði þessa hugsun birtast innan skóla, vinnustaða, félagasamtaka og fjölskyldna þar sem fólk væri ýmist skilgreint sem bandamenn eða andstæðingar eftir afstöðu sinni. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Annaðhvort með eða á móti

Valgerður byggði umfjöllunina á greiningu James Lindsay og sagði skiptingu í vini og óvini vera einn af grundvallarþáttum þeirrar hugmyndafræði sem hún hafði verið að lýsa.

Fólk væri flokkað eftir því hvort það styddi ákveðinn málstað eða veitti honum viðnám. Hún nefndi sem dæmi að innan gagnrýninnar kynþáttafræði og Black Lives Matter væri fólk annaðhvort skilgreint sem andrasistar eða rasistar. Á sama hátt gæti afstaða til málefna transfólks ráðið því hvort einstaklingur væri skilgreindur sem bandamaður eða fordómafullur.

Ekkert rúm væri þá fyrir millistig eða ágreining um einstök atriði. Sá sem viki frá línunni yrði færður yfir í hóp andstæðinganna.

Sama hugsun birtist innan skóla og vinnustaða

Valgerður sagði mikilvægt að fólk lærði að þekkja þessa ættbálkahugsun í eigin umhverfi. Hún gæti birst á kaffistofum vinnustaða, innan skóla og í félagasamtökum.

Á Covid-tímanum hefði sama skipting að hennar sögn komið fram í skólum þegar þeir sem vildu ekki fara í sprautur voru hundeltir af þeim sem töldu þær nauðsynlegar.

Hún sagði þetta dæmi um hvernig ágreiningur um einstakt mál gæti orðið að skiptingu fólks í 2 fylkingar þar sem annar hópurinn væri skilgreindur sem réttur en hinn sem óvinur.

Fjölskyldur sundrast vegna skoðana

Arnþrúður benti á hvaða áhrif þetta hefði á heimilin og fjölskyldurnar. Hún lýsti því hvernig einstaklingur sem hefði tileinkað sér ákveðna hugmyndafræði gæti komið í fjölskylduboð og farið að ráðast á skoðanir annarra, meðan aðrir þyrðu ekki að svara eða andmæla.

Valgerður sagði átakanlegar sögur vera til um fjölskyldur þar sem þetta hefði gerst og að ástandið væri orðið mun alvarlegra en áður.
Sama mynstur gæti komið fram í trúarhópum og sértrúarsöfnuðum þar sem þeir sem tilheyrðu hópnum væru vinir en þeir sem stæðu utan hans skilgreindir sem óvinir.

Fólk þurfi að þora að hafa eigin skoðanir

Arnþrúður sagði fólk þurfa að hætta að óttast eigin skoðanir og þora að segja nei þegar aðrir reyndu að þröngva sínum sjónarmiðum upp á fólk, hópa eða félög.

Valgerður sagði skiptinguna í bandamenn og óvini vera kjarnann í þeirri hegðun sem hún rakti til woke-hugmyndafræðinnar. Vinirnir væru þeir sem berðust gegn þeim sem hreyfingin skilgreindi sem óvini en sá sem veitti viðnám gæti sjálfur færst yfir í hóp óvinanna.

Þannig yrði pólitískur eða hugmyndafræðilegur ágreiningur ekki lengur aðeins ágreiningur um skoðanir heldur mælikvarði á það hver tilheyrði hópnum og hver stæði utan hans.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila