Vallahverfið byggt í farvegi stærsta hraunrennslisfarvegi Krísuvíkurkerfisins

Hjördís Vilhjálmsdóttir ræddi við Pál Einarsson, jarðeðlisfræðing og Benedikt Ófeigsson, jarðeðlisfræðing í þættinum Skipulagsmál, um náttúruvá og hvernig taka þurfi tillit til hennar við skipulag byggðar. Páll sagði Vallahverfið í Hafnarfirði hafa verið byggt í náttúrulegum farvegi mikils hraunrennslis frá Krýsuvíkurkerfinu og kallaði staðsetningu hverfisins skipulagsmistök. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Hraunið myndi leita niður dalinn

Vallahverfið er stórt íbúðar- og atvinnuhverfi. Páll útskýrði að ef gos kæmi upp í Krýsuvíkurkerfinu norðan Vatnsskarðs gæti hraun runnið niður grunnan dal þar sem byggðin stendur.

Sama leið hefur áður verið farvegur hrauns. Kapelluhraun rann þar á 12. öld og Páll lýsti svæðinu sem eðlilegum farvegi mesta hraunrennslisins á þessum slóðum.
Hann sagði því mikla byggð hafa verið reista á stað þar sem þekking á hraunrennsli hefði átt að vega þungt við skipulagið.

Varnargarðar þurfa að beina hrauninu

Hjördís spurði hvort hægt væri að verja Vallahverfið með hraunvarnargörðum líkt og gert hefur verið í Grindavík.

Páll benti á að varnargarðar væru ekki byggðir til að stöðva hraun heldur til að beina því annað. Í Grindavík væri hrauni beint fram hjá bænum og út í sjó og sambærileg aðferð hefði verið notuð í Vestmannaeyjum.

Sú leið væri hins vegar ekki fyrir hendi í Vallahverfinu. Þar væri ekki hægt að beina hrauninu fram hjá byggðinni með sambærilegum hætti.

Hjördís spurði hvort hann ætti þá við að nánast allt hverfið gæti verið undir og Páll svaraði því játandi. Annaðhvort þyrfti að reyna að stöðva hraunið með varnargörðum þvert yfir dalinn eða hætta væri á að hverfið færi undir hraun.

Frekari uppbygging myndi bæta við fyrri skipulagsmistök

Hjördís ræddi einig þær hugmyndir sem fram hafa komið um frekari smáhýsabyggð við Krýsuvíkurveg.

Páll sagði slíka uppbyggingu vera að bæta við þau skipulagsmistök sem þegar hefðu verið gerð á svæðinu. Nægt byggingarland væri á höfuðborgarsvæðinu og því væri hreinn klaufaskapur að halda áfram að byggja akkúrat í farvegi næsta hraunstraums.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila