Vara við að ríki fullgildi farsóttarsamning WHO

Alþjóðlegu samtökin CitizenGO hafa sent frá sér harðort bréf sem dreift hefur verið með tölvupóstum og vakin athygli á undirskriftalista þar sem stjórnvöld aðildarríkja, þar á meðal stjórnvöld á Íslandi eru hvött til að hafna því að samþykkja fullgildingu farsóttasamnings Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar, WHO, á komandi fundi Alþjóðaheilbrigðisþingsins í Genf.

Í bréfinu sem Útvarp Saga fékk afrit af kemur fram að að samningurinn muni færa alþjóðlegum stofnunum aukið vald yfir heilbrigðismálum ríkja og skapa grundvöll fyrir víðtækari samræmingu aðgerða í framtíðarfarsóttum.

Varað við auknu valdi alþjóðastofnana

Þá kemur fram að samningurinn geti haft áhrif á frelsi fólks, val og stjórn yfir eigin heilsu og lífi. Þar er vísað til aðgerða sem gripið var til í Covid-faraldrinum, meðal annars lokana, samkomutakmarkana og ferðatakmarkana. CitizenGO segir WHO hafa gegnt lykilhlutverki í þeim aðgerðum og að nýr farsóttasamningur muni gera alþjóðleg viðbrögð hraðari og samræmdari í framtíðinni.

Jafnframt segir að samningurinn muni auðvelda stjórnvöldum að innleiða sambærilegar aðgerðir síðar með minni mótspyrnu frá almenningi.

Viðræður hafa tafist ítrekað

Bent er á að viðræður um samninginn hafi tafist ítrekað og að enn hafi ekki náðst samkomulag um alla þætti hans. Þar er vísað til funda í Genf þar sem ágreiningur hafi verið milli ríkja um lokafrágang samningsins. CitizenGO segir að þrýstingur frá almenningi og andstaða ríkja hafi tafið framgang samningsins á undanförnum árum.

WHO vill harðari aðgerðir heimsfaröldrum

Farsóttasamningurinn hefur verið til umræðu innan WHO frá Covid-faraldrinum og markmið hans er meðal annars að efla alþjóðlegt samstarf, upplýsingamiðlun og herða viðbrögð við nýjum farsóttum. Stuðningsmenn samningsins segja að heimsfaraldurinn hafi sýnt veikleika í alþjóðlegri samhæfingu og að ríki þurfi að geta brugðist hraðar og samstilltar við nýjum ógnunum.

Andstæðingar samningsins telja hins vegar að hann geti aukið áhrif alþjóðastofnana á stefnumótun einstakra ríkja í heilbrigðismálum.

Alþjóðaheilbrigðisþingið fundar á næstu dögum

Á næstu dögum munu heilbrigðisráðherrar aðildarríkja WHO koma saman á Alþjóðaheilbrigðisþinginu í Genf þar sem framhald viðræðnanna verður rætt. CitizenGO hvetur almenning til að þrýsta á stjórnvöld að hafna samningnum áður en endanleg afstaða verður tekin.

Smelltu hér til þess að skrifa undir undirskriftalistann

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila