Vara við allt að 960% kostnaðarhækkun vegna gjaldtöku á Gullna hringnum

Forsvarsmenn ferðaþjónustufyrirtækja í Uppsveitum Árnessýslu hafa lýst áhyggjum af fyrirhugaðri gjaldtöku á fjölsóttum ferðamannastöðum og áhrifum hennar á atvinnulíf svæðisins. Áhyggjurnar komu meðal annars fram á fundi ferðaþjónustuaðila í Uppsveitum með atvinnuvegaráðherra þar sem rætt var um náttúru- og innviðagjald, skattabreytingar, leyfisveitingar og fyrirsjáanleika í rekstrarumhverfi ferðaþjónustunnar.

Kostnaður 16 manna hóps gæti farið úr 7.200 í 76.000 krónur

Knútur Rafn Ármann og Dóróthea Ármann gera ítarlega grein fyrir gagnrýni sinni í umsögn Friðheima um frumvarp stjórnvalda um náttúru- og innviðagjald, mál S-180/2026.

Í einu dæmi umsagnarinnar er reiknað með að kostnaður 16 manna hóps vegna heimsókna á viðkomandi staði geti hækkað úr 7.200 krónum í um 76.000 krónur. Það jafngildir hækkun upp á allt að 960%.

Friðheimar vara við að gjaldtaka á aðeins þremur fjölsóttum stöðum geti breytt ferðamynstri og beint ferðamönnum frá Gullna hringnum. Slík breyting geti haft áhrif langt út fyrir staðina sjálfa, meðal annars á leiðsögumenn, veitingastaði, gistingu, afþreyingu og önnur fjölskyldufyrirtæki í Uppsveitum.

Óttast áhrif á fjárfestingar og atvinnu

Á fundinum með ráðherra var lögð áhersla á að skoða þyrfti samanlögð áhrif nýrra gjalda, skattabreytinga og annarra breytinga á rekstrarumhverfinu.

Óvissa og skammur fyrirvari geti haft bein áhrif á fjárfestingarákvarðanir, verðlagningu og skipulag ferða. Í umsögn Friðheima kemur fram að fyrirtæki hafi þegar frestað framkvæmdum vegna óvissunnar.

Sérstök gagnrýni beinist að því að ekki liggi fyrir fullnægjandi greining á áhrifum gjaldtökunnar á veltu fyrirtækja, atvinnu eða tekjur sveitarfélaga á þeim svæðum sem verða fyrir áhrifunum.

Vilja gjaldtöku sem nær yfir landið allt

Friðheimar leggja til að aðrar leiðir verði skoðaðar í stað gjaldtöku á einstökum náttúruperlum. Þar eru nefnd komugjald, landsbundinn náttúrupassi eða sameiginlegur passi fyrir þjóðgarða landsins.

Knútur Rafn tók sömu sjónarmið upp á fundinum og lagði áherslu á að ferðaþjónusta hefði orðið ein af undirstöðum atvinnulífs í Uppsveitum.

Rakel Theodórsdóttir, byggðaþróunarfulltrúi Uppsveita Árnessýslu, lýsti þeirri þróun að svæðið hefði færst frá því að vera fyrst og fremst viðkomustaður ferðamanna yfir í áfangastað þar sem gestir dveldu lengur og nýttu fjölbreyttari þjónustu.

Heilsársferðaþjónustan hefði um leið skapað stöðugri störf, stutt við búsetu og aukið þjónustuframboð fyrir íbúa svæðisins.

Ráðherra vísar til uppbyggingar innviða

Atvinnuvegaráðherra sagði markmið náttúru- og innviðagjaldsins vera að fjármagna uppbyggingu og viðhald innviða auk markaðsstarfs, rannsókna og greininga.

Markmiðið væri ekki að beina ferðamönnum frá Gullna hringnum og hagsmunaaðilar voru hvattir til að koma sjónarmiðum sínum á framfæri í samráðsferlinu.

Ferðaþjónustuaðilar í Uppsveitum kalla hins vegar eftir því að efnahagsleg áhrif breytinganna verði metin áður en kerfinu verður hrint í framkvæmd og að tekið verði tillit til þess að gjald sem ferðamaður greiðir á einum stað geti dregið úr útgjöldum hans annars staðar á ferðinni.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila