Varað við of íþyngjandi innleiðingu ESB-reglna

Viðskiptaráð Íslands og fleiri samtök atvinnulífsins vara við því að íslensk stjórnvöld gangi lengra en nauðsynlegt er við innleiðingu á SRD-II tilskipun Evrópusambandsins í íslenskan rétt. SRD-II er tilskipun Evrópusambandsins um réttindi hluthafa í skráðum félögum. Markmið hennar er meðal annars að auka gagnsæi í stjórnarháttum fyrirtækja, efla aðkomu hluthafa að stjórnun félaga og setja reglur um samskipti félaga, fjárfesta og ráðgjafa. Þetta kemur fram í sameiginlegri umsögn Samtaka atvinnulífsins, Samtaka fyrirtækja í fjármálaþjónustu, SVÞ, Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, Samorku, Samtaka iðnaðarins, Samtaka ferðaþjónustunnar og Viðskiptaráðs Íslands um breytingar á félagaréttarlöggjöf.

Vilja ekki strangari reglur en ESB krefst

Samtökin leggja áherslu á að við innleiðingu Evrópureglna verði ekki farið umfram lágmarkskröfur tilskipunarinnar, að gildissvið íslenskra reglna verði ekki víðtækara en þeirra evrópsku og að allar ívilnandi undanþágur verði nýttar. Þá segja samtökin mikilvægt að sambærilegar kröfur sem þegar séu til staðar í íslenskum lögum eða reglugerðum verði afnumdar til að forðast tvíverknað og aukið regluálag á fyrirtæki.

Fagna breytingum á frumvarpinu

Í umsögninni kemur þó fram að samtökin fagni ákveðnum breytingum sem gerðar hafi verið á frumvarpinu frá fyrri stigum málsins. Þar er sérstaklega nefnt að auknar heimildir til nýtingar kauprétta fyrir stjórnarmenn séu jákvætt skref.

Mikilvægt að vandað sé til samráðs

Samtökin segja jafnframt að mikilvægt sé að stjórnvöld fylgi skýrum og formlegum ferlum við breytingar á félagaréttarlöggjöf þar sem um sé að ræða grundvallarlöggjöf fyrir stóran hluta íslensks atvinnulífs. Fram kemur að fulltrúar SA, SFF og Viðskiptaráðs hafi tekið þátt í óformlegum starfshópi atvinnuvegaráðuneytisins við undirbúning frumvarpsins og átt fundi með ráðuneytinu áður en frumvarpsdrög voru birt í Samráðsgátt.

Samtökin segja það samráð hafa verið til fyrirmyndar en leggja áherslu á að tryggt verði að formfesta og skýr verklag ríki við slíka lagasetningarvinnu.

Smelltu hér til þess að skoða umsögnina

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila