Varað við vonskuveðri á morgun

vontvedurVeðurstofan hefur sent frá sér tilkynningu þar sem varað er við slæmu veðri á landinu á morgun. Fram kemur í tilkynningunni að búist sé við 28 til 28 metrum á sekúndu á sunnan og vestanverðu landinu eftir hádegi á morgun en allt að 40 metrum í hviðum. Veðrinu fylgir úrkoma, fyrst um sinn í formi snjókomu en síðar slyddu og rigningu. Þá er gert ráð fyrir afar slæmu skyggni. Annað kvöld snýst áttin í mun hægari sunnan og suðvestanátt.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila