Þróun öryggismála, aukinn varnarviðbúnaður og stuðningur við Úkraínu voru áherslumál á tveggja daga fundi varnarmálaráðherra Norðurlanda og Eystrasaltsríkja sem lauk í Stokkhólmi á fimmtudag.
Fyrri daginn fóru fram fundir norrænu ráðherranna þar sem rætt var um ört vaxandi samstarf ríkjanna í öryggis- og varnarmálum sem styrkist enn frekar með inngöngu Finnlands og Svíþjóðar í Atlantshafsbandalagið. Markvisst hefur verið unnið að því að tengja ríkin betur saman með æfingum og áætlanagerð sem miðar að því að auka viðbúnað og samhæfingu. Ísland tekur virkan þátt í vinnunni og hóf sömuleiðis fulla þátttöku í hermálahlið norræna varnarsamstarfsins í lok síðasta árs.
Aukið samstarf Norðurlandanna í varnarmálum mikið fagnaðarefni
Bjarni Benediktsson utanríkisráðherra, sem gegnir einnig hlutverki varnarmálaráðherra, átti tvíhliða fund með Pål Jonson varnarmálaráðherra Svíþjóðar sem fer með formennsku í norræna varnarsamstarfinu (NORDEFCO) í ár en Danir taka við keflinu í næsta mánuði. Á fundinum ræddu ráðherrarnir samstarf ríkjanna, þróun öryggismála og stöðu aðildarumsóknar Svíþjóðar.
„Stóraukið samstarf Norðurlandanna í varnarmálum síðustu misseri er mikið fagnaðarefni enda deilum við bæði áherslum og sameiginlegum hagsmunum á svæðinu. Aðild Finnlands, og von bráðar Svíþjóðar, að Atlantshafsbandalaginu styrkir stöðu bandalagsins og eflir öryggi íbúa Norðurlandanna enn frekar. Á fundi mínum með Pål Jonson ítrekaði ég ótvíræðan stuðning Íslands við aðild Svíþjóðar sem ég bind vonir við að verði að veruleika mjög fljótlega,” segir Bjarni Bendiktsson, utanríkisráðherra.