Vegagerðin ræðir innviðaskuld og verkefnastýringu á ráðstefnu

Vegagerðin heldur ráðstefnu um verkefnastýringu stórframkvæmda og viðhalds þriðjudaginn 15. apríl á Hótel Reykjavík Grand. Viðburðurinn fer fram í salnum Hásteini og beinist að helstu áskorunum í innviðauppbyggingu á Íslandi.

Áhersla á innviðaskuld og forgangsröðun framkvæmda

Á ráðstefnunni verður fjallað um hvernig Vegagerðin vinnur að skipulagningu, stýringu og forgangsröðun framkvæmda og viðhalds með það að markmiði að nýta fjármagn á skilvirkan og sjálfbæran hátt. Sérstök áhersla verður lögð á að bæta verkefnastýringu til að tryggja að framkvæmdaáætlanir standist.

Alþjóðlegir sérfræðingar með erindi

Fjöldi innlendra og erlendra sérfræðinga tekur til máls. Aðalfyrirlesari er Dan Gardner, kanadískur blaðamaður og metsöluhöfundur, sem hefur fjallað ítarlega um ákvarðanatöku og stýringu flókinna verkefna. Þá flytur Michael Ebbesen, framkvæmdastjóri mannvirkjasviðs dönsku Vegagerðarinnar, erindi um hvernig tekist var á við uppsafnaða innviðaskuld í Danmörku.

Vettvangur fyrir faglegt samtal

Markmið ráðstefnunnar er að efla faglega umræðu um opinberar framkvæmdir, stuðla að sameiginlegri sýn og bæta ákvarðanatöku í innviðauppbyggingu.

Nánari upplýsingar um ráðstefnuna má finna með því að smella hér.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila