Veitingahúsið Laugaás hættir eftir 43 ára starfsemi

Hið margrómaða veitingahús Laugaás hættir starfsemi þann 24.desember næstkomandi. Þetta kom fram í þættinum Matur og Heilbrigði í dag en þar ræddi Arnþrúður Karlsdóttir við Hafberg Þórisson frá Lambhaga og Ragnar Guðmundson í Laugaási.

Ragnar sem staðið hefur við pottana í Laugaási undanfarin 43 ár og matreitt þá dýrindis rétti sem staðurinn er rómaður fyrir segir að allt hafi sinn tíma og nú sé rétti tíminn til þess að láta staðar numið og því verður staðnum formlega lokað 24.desember sem fyrr segir. Ragnar lumar þó á rúsínu í pylsuendanum og segir að það verði svolítið húullumhæ að hætti Laugaásmanna í janúar en það verði kynnt síðar. En þeir sem vilja fá sér hina árlegu Þorláksmessuskötu þetta árið þurfa þó ekki að örvænta því hún verður á sínum stað og byrjar skötuveisla Laugaáss þann 19.desember fram að kvöldi þess 23.desember. Þá eru margir einnig sem fá sér hina gómsætu pörusteik í desember og verður hún einnig í boði sem endranær.

Ragnar segir margt hafa breyst í matarvenjum Íslendinga í gegnum tíðina en lambakjötið í bernaisesósu og fiskurinn sem verið hefur frá upphafi á matseðli Laugaáss standi enn fyrir sínu og lítið lát virðist þar á aðsókninni. Ragnar segist hætta sáttur eftir öll þessi ár í bransanum en þó veitingahúsið hætti starfsemi mun veisluþjónusta Laugaás halda áfram starfsemi en þar ræður Guðmundur sonur Ragnars ríkjum og reiðir fram allt frá minni veislum og upp í stórar fjölmennar veislur.

Hafberg Þórisson í Lambhaga sem selt hefur Lambhagasalatið víðfræga um árabil segist verða var við þær breytingar á matarvenjum sem Ragnar talar um en í því hafa falist tækifæri fyrir Hafberg því hann hefur um árabil flutt salat til Grænlands. Hafberg segir að Grænlendingar séu mikil þjóð hefða og því sé svolítið erfitt að sannfæra eldri Grænlendinga í að fá sér salat en yngri kynslóðir og sér í lagi þeir sem hafa sótt nám í Danmörku eru sólgnir í salat og því ljóst að markaður fyrir grænmeti fer stækkandi þar um slóðir.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila